við samþykt sambandsþingsins 1929 og sem miðaði að því, að skattgjöldin kærnu rettlátar niður. Frumvörp og tillögur um einkasölu á stein- olíu og tóbaki voru flutt, en dagaði uppi. Hefir Framsókn þó jafnan talið sig fylgja tóbaks- einkasölu, en á alpingi 1930 brást hún í því máli á síðustu stundu. Samkvæmt kröfu sambandsþingsins í fyrra var flutt frv. um 8 stunda vinnudag í sildar- bræðslu- og fiskimjöls-verksmiðjum. Kemst mál- \ið í nefnd í neðri deild, en nefndin klofnaði, og var Héðinn Valdimarsson i minni h'luta. Síðan dagaði frv. uppi. Pá fluttu Alþýðuflokksmenn á síðasta þingi merkilegt mál, sem við höfum eiginlega of lítið talað um opinberlega. I'etta var frv. um jöfnunarsjóð ríkisins. Er þessum sjóði ætlað að jafna framkvæmdir hins opinbera frá ári til árs. Pegar tekjur ríkissjóðs fara fram úr 12 milljónum króna, þá ætlast frv. til, að það, sem þar er fram yfir, verði lagt í sérstakan sjóð og fö hans varið til opinberra fram- kvæmda, þegar erfiðara er i ári hjá ríkis- sjóðnum. Er til í Svíþjóð svipuö löggjöf og hér er farið fram á og var flutt af jafnaðar- mönnum þar. Pykir þessi sjóður hafa gefist vel. Hefir hann á erfiðum tímum getað bætt úr at- vinnuleysi, en í góðum áruni takmarkað eyðslu rikisstiornar, Sama hlutverk er jftfnunarsjóöi okkar ætlað að vinna." Félðg, félagar og fjárhagnr. Pegar þingið var háð, voru i Alþýðusambandi 34