7. Hutlíóvits,r. Samþykt var að fela þingmönnum flokksins að vinna að því þegar á næsta þingi, að kom- ið verði upp radíóvitum i sambandi við Ijósa- vitana á þeim stöðum á ströndum Iandsins, sem hættulegastir eru taldir sjófarendum. 8. SJúvarútvcgsmal. Eftirfarandi tillögur um sjávarútvegsmál voru samþyktar í einu hljóði: I. Fiskimálardðuneyti: Stofnað verði serstakt fiskimálaráðuneyti, er standi undir atvinnu- málaráðherra. Undir það heyri; fiskirann- sóknir, væntanlegar vélfræði- og byggingar- leiðbeiningar á fiskibátum, fiskiklak, til- raunastöðvar fyrir hagnýtingu afla og nýrra veiðarfæra, markaðsfréttir og annað það, er að sjávarútvegi lýtur. Fiskimálaráðuneytið gefi út mánaðarrit eða vikublað, er leggi sérstaka áherzlu á að kynna mönnum nýjungar í veiðiaðferð- um og hagnýtingu aflans, svo og annað það, er sjávarútveginum má að haldi koma. Fiskifélagið, eins og það nú er, sé lagt niður, en fiskideildirnar starfi áfram undir eftirliii fiskimálastjóra, og fái fjórðungs- sambönd nokkur fjárráð. II. Hradfrystihús. Ríkið byggi svo fljótt, sem unt er, hraðfrystihús, sem rekin sóu með líku fyrirkomulagi og síldarverksmiðja rík- isins, minst eitt í hverjum landsfjórðungi. III. Fiski8amlag. Lögboðið verði fiskisamlag, er hafi einkasölu á útfluttum fiski fyrir alt landið." 38