synlegar eru til, að kaupstaðir eða kauptún getj trygt ibúunum nægilegt ræktað og ræktanlegt land með sem beztum kjörum." 17. Stefnnskra Alpýfluflokkslns f bæju- og svefta- malnm. Alþýðuflokkurinn er eini flokkurinn hér á landi, sem hefir skýra og ákveðna stefnuskrá í landsmálum. Enn þá hefir ekki verið samin sundurliðuð stefnuskrá fyrir flokkinn í bæja- og sveita-málum. Þetta er nú orðið svo aðkall- andi, að ekki má Iengur dragast, ef fult sam- ræmi á að fást i starfsemi Alþýðuflokksmanna i bæja- og sveita-stjórnum. Alþýðuflokkurinn hefir nú hreinan meiri hluta i 5 af 8 kaup- stöðum landsins, og fulltrúum hans i sveita- stjórnum fjölgar með ári hverju. Fyrir því samþ. sambandsþingið að skora á sambands- stjórn: ad semja stefnuskrá fyrir Alþýðuflokkinn í bæja- og sveita-málum og leita álits fjórðungssam- bandanna um hana, áður en gengið er frá henni til fulls. 18. Skjalasafn Alþýonflokksins. Sambandsþingið felur væntanlegri sambands- stjórn að gera gangskör að þi'í að koma á lagg- irnar sérstöku safni fyrir Alþýðuflokkinn. Sé þar reynt að draga saman á einn stað öll þau verklýðsblöð, sem komið hafa út hér á landi, allar bækur og rit á íslenzkri tungu fyrst og fremst, sem fjalla um verklýðsmál og jafnaðar- stefnuna, svo og allar gamlar gerðabækur og skjöl verklýðs- og jafnaðarmanna-félaga, sem 41