andæfir hún Freud. Á þeim tímum, er vald hennar stóð hæst, gekk hún enn lengra í and- ófi sínu gegn vitsmunalífinu. Gregorius páfi hinn mikli ritaði biskupi nokkrum bréf, er byrjaði svo: Oss hefir borist til eyrna sú frétt, sem vér getum ekki umtalað kinnroða- laust, að þér útskýrið málfræði fyrir nokkr- um vinum yðar." Fyrir áhrifavald yfirhirðis- ins var biskupinn neyddur til að hætta þessu ósæmilega athæfi, og latnesk málvísindi náðu sér ekki fyrr en á Endurreisnartímabilinu. Trú- arbrögð eru ekki skaðvænleg að eins í vits- munalegu tilliti, heldur einnig siðferðilega. Með þessu á ég við, að þau kenna siðfræðilegar Iagasetningar, sem hvergi leiða til mannlegrar hamingju. Fyrir fáum árum, þegar þjóðarálits var leitað um það í Þýzkalandi, hvort hinar afdönkuðu konungsfjölskyklur skyldu fá að njóta séreigna sinna, þá staðhæfðu þýzku kirkj- urnar opinberlega, að það væri gagnstætt kenn- ingu kristindómsins að afnema þennan rétt þeirra. Eins og allir vita, andmæltu kirkjurnar afnámi þrælahalds eins lengi og þær höföu kjark til, og nú á dögum setja þær sig upp á móti sérhverri hreyfingu, sem miðar til hags- munalegs réttlætis, að fráskildum fáeinum, vel auglýstum undantekningum. Páfinn hefir opin- berlega bannfært jafnaðarstefnuna. Kristlndómur og kynferðismál. Lakasti þátturinn i kristnu trúnni er þó af- staða hennar gagnvart kynferðismálum, af- staða, sem svo er óheilbrigð og ranghverf, að hún verður ekki skilin nema með hliðsión af 48