á vora daga kent kristnuin mönnum að skainm- ast sín fyrir ýmsar trúarerfðir þeirra. Það er gaman að heyra kristna menn nú á tlögum vera að reyna að telja manni trú um, hve skyn- samlegur og mannúðlegur kristindómurinn sé i raun og veru, án þess að hafa hugboð um þá staðreynd, að öll mannúðin og skynsemin er að þakka kenningum manna, sem ofsóttir voru af öllum rétttrúuöum, kristnum mönnum, meðan þeir lifðu. Enginn trúir því nú á dögum, að heimurinn hafi verið skapaður árið 4004 f. Kr., en þess er skemst að minnast, að efasemdir um þetta atriði þóttu svívirðilegur glæpur. Langa- langafi minn komst að þeirri niðurstöðu við rannsókn á hrauninu i Etnuhlíðum, að jörðin hlyti að vera eldri en rétttrúaðir menn héldu, og gerði þessa skoðun heyrum kunna á prenti. Fyrir þetta afbrot var hann hundsaður af hór- aðsstjórninni og útrekinn úr samkvæmislífinu, Ef hann hefði verið af lægri stigum, myndi refsing hans eflaust hafa orðið harðari. Rótt- trúuðum mönnum er engin málsbót, p6tt þeir trúi ekki lengur öllu því þrugli, sem trúað var fyrir hundrað og fimmtíu árum. Vígtennurnar hafa smám saman verið dregnar úr kristin- dómnum þrátt fyrir hina öflugustu mótstöðu, og það er einvörðungu að þakka aðgeröum frjálshyggiumanna. Kenniugln um frjálsan vilja. Afstaða kristninnar gagnvart lögmálum nátt- úrunnar hefir verið einkennilega breytileg og óákveðin. Á aöra hönd var kenningin um frjáls- an vilja, sem mikill meiri hluti kristinna manna 62