stök áhrif á liegðun maiins. Postular hins írjálsa vilja halda því fram, að maður geti komist hjá því með viljapreki að drekka sig drukkinn, en þeir halda því ekki fram, að þegar maður er drukkinn á annað borð, geti hann borið fram orðin brezka stjórnarskráin" jafn-skýrt og ef hann væri algáður. Allir, sem haft hafa saman við börn að sælda, vita, að hæfilegt mataræði er betur til þess fallið að gera þau þæg en mælskuþrungnustu predikanir veraldarinnar. Einu áhrifin, sem kenningin um frjálsan vilja Jiefir í reyndinni, eru þau að hindra fólk frá því að lata slíka hversdagsþekkingu leiða sig að skynsamri niðurstöðu. Þegar einhver maður hegðar sér oss til leiðinda, þá kjósum vér að líta á hann sem slæman mann, en neitum að horfast í augu við þá staðreynd, að hin leið- inlega hegðun hans á rót sína að rekja til um- liðinna orsaka, sem ná iðulega aftur fyrir fæö- ingardag hans, ef vér gefum oss tíma til aö rekja spor þeirra nógu langt, og þannig ó- mögulegt að kalla hann til ábyrgðar, hvernig sem vér beitum ímyndunaraflinu. Það kemur aldrei fyrir, að maður með- liöndli bifreið sína eins heimskulega og hann meðhöndlar aðrar mannlegar verur. Vilji bif- reiðin ekki fara af stað, þá ásakar hann hana ekki um synd vegna sinnar leiðinlegu hegðunar. Hann segir ekki: Þú ert slæm bifreið, og mér dettur ekki í hug að láta á þig meira benzín, fyrr en þú i'erð ai' stað." Hann reynir að finna út, livað er að og laga það. Sams konar aðferö til að meðhtíndla mannlegar verur er alítin gagnstæð sannindum vorrar hoilögu trúar. I>að