numdar grundvallarorsakir styrjalda; trúar- brögðin koma í veg fyrir, að kend sé siðfræði vísindalegrar samvinnu í stað hinna fornu, grimmúðugu kenninga um synd og refsingu. Vera má, að mannkynið standi nú á þröskuldi gullaldar; en ef svo er, þá ber fyrst nauðsyn til að fella drekann, sem gætir hliðsins, en sá dreki eru trúarbrögðin. (Halldór Kiljan Laxness islenzkaði.) Muuur er nú á. A dýrustu matsölustöðunum i Berlín kostar hver munnbiti nokkrar krónur. I fátækrahverf- unum eru kettir og rottur seldar sem manna- matur. I auðmannahverfunum þar er venjuleg íbúð 12 herbergi, en betri" íbúðir um og yfir 20 herbergi. I austurhluta Berlínar, þar sem aðal- lega búa fátæklingar, eru 50 000 íbúðir", sem eru að eins eitt herbergi án eldhúss, en 350 000 ibúðir, sem eru eitt herbergi og eldhús. í þess- um 350 þús. búa 1014 768 manns. Sums staðar er meira en 20 manns hrúgað saman í eitt lítið herbergi. Þar verða allir að sofa, og þar er líka matbúið, etið og unnið. Bifreiðanúmerin eru nýlega komin upp í 100 000 i Berlin. Atvinnulausir menn i Þýzkalandi eru nú sem stendur yfir 3 milljónir og fer fjölgandi. 76