öllum pólitískum flokkum og tekur því á móti hjálp og aðstoð allra þeirra, sem vilja styrkja það, enda hafa ýmsir ágætismenn, eins og t. d. Friðþjófur Nansen, verið ótrauðir starfsmenn þess. Félagatalan er nú alls, um allan heim, 15 16 milljónir, og sú hjálp, er A. S. V. hefir miðlað bágstöddum verkalýð, nemur nú um 80-85 milljónum króna. lJegar, er íslandsdeild A. S. V. var stofnuð í sumar, barst henni verkefni í hendur, er verkamenn í Krossanesi urðu að leggja út í verkfall ril að rétta hluta sinn gagnvart hin- um erlenda kúgara sínum. Kom hjálp A. S. V. I. í góðar þarfir og hefir án efa átt sinn þatt í sigrinum. Nú eru deildir A. S. V. á islandi í fimm helztu kaupstöðunum. Ótal verkefni bíða A. S. V. her á landi. Skipskaðar, snjóflóð, eldgos, jarðskjálftar svifta fólk eignum og húsnæði. Vegna fátæktar og anna eru börn verkalýðs- ins ofurseld uppeldisleysi götulífsins. Or þvi eiga barnahæli A. S. V. að bæta eftir megni. Hin stórkostlegasta kreppa, sem sögur fara af, herjar nú allan auðvaldsheiminn og er þegar skollin yfir tsland. Slikri kreppu hlýtur að fylgja áköf tilraun auðvaldsins til þess að koma öllu tapinu á bak alþýðunnar með því að lækka kaup hennar. Þar af leiða kaupdeilur og senni- lega verkföll, sem einasta nauðvörn verkalýðs- ins. Það má því ekki seinna vera, að A. S. V. er 78