3. grein. A. S. V., íslandsdeildin, er óháð öll- um pólitiskum flokkum og veitir hjálp sína allri alþýðu án tillits til pólitískra skoðana hinna bágstöddu og veitir því viðtöku sem meðlimum öllum þeim, sem af einlægum hug bjóða fram aðstoð sína til hjálpar alþýðunni, pegar neyðin sverfur að (6. grein alþjóðalaganna). 4. grein. Stjórn félagsins hefir aðsetur sitt í Reykjavik. Hana skipa fæst 5 menn, flest 9, og verða að minsta kosti 5 af þeim að vera búsettir i Reykjavik. Ef færri eru i stjórninni en 9, getur hún sjálf bætt við sig mönnum, unz hún er fullskipuð. 5. grein. Meðlimir geta orðið bæði einstak- lingar og félög, er starfa að verklýðsmáhun. 6. grein. Meðlimir felagsins, hvar á landinu sem er, geta myndað deildir úr þvi, og þurfa minst 7 menn til að mynda deild. Ekki iná vera nema ein deild í hverjum kaupstað, kaup- túni eða sveit. Verklýðsfélög geta þó ekki verið meðlimir deilda. 7. grein. Allar deildir skulu hafa samhljóða lög, er samin eru og gefin út af stjórn fé- lagsins. 8. grein. Deildir eru skyldar að senda félags- stjórn skýrslu um starfsemi sína ársfjórðungs- lega. Félagsstjórn skal senda prentað skýrslu- form fyrir ársfjórðungsskýrslur til deildanna. 9. grein. Félagsgjald er minst ein króna árs- fjórðungslega á hvern félaga. Qjaldið greiðist fyrir fram. Einstakir félagar greiða til félags- stjórnar. en meðlimir deilda til deildarstjórna. Verklýðsfélög greiða á ári 10 aura af hverj- um meðlim sinum. 80