10. grein. Deildir gjalda til félagsstjórnar 75 aura af hverjum meðlim sínum ársfjórðungs- lega, um leið og ársfjórðungsskýrslur eru sendar. 11. grein. Allir fólagar skulu hafa félags- skírteini, sem er gefið út af félagsstjórn. Deild- arstjórnir geta veitt nýjum meðlimum skírteini, er gilda í einn mánuð frá inntökudegi. 12. grein. Aðalfund skal halda i Reykjavík ár hvert. Félagsstjórn ákveður fundardag og boðar fundinn með minst tveggja mánaða fyrirvara. 13. grein. Til aðalfunda kjósa deildirnar hver einn fulltrúa og enn einn fyrir hvert hundrað meðlima eða brot úr hundraði. 14. grein. Allir félagar og meðlimir deilda geta setið aðalfundi og hafa þar málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hafa að eins full- trúar og félagsstjórn. Verklýðsfélög, sem eru meðlimir, mega senda hvert einn fulltrúa til að sitja aðalfund; hefir hann þar málfrelsi og tillögurétt, en ekki atkvæðisrétt. 15. grein. Félagsstjórn kallar saman auka- fundi, er henni þykir með þurfa eða ef meira en helmingur deilda æskir þess. Um fundar- boðun og fulltrúa á aukafund gilda sömu á- kvæði sem aðalfund. 16. grein. Á fundum ræður meiri hluti at- kvæða úrslitum mála. 17. grein. Félagsstjóm stjórnar allri starfsemi A. S. V. I. á milli funda, gefur út ávörp í nafni félagsins, annast hjálparstarfsemi þess og vinn- ur að útbreiðslu og þróun A. S. V. um land alt. Hún stendur í nánu sambandi við deildirnar og veitir þeim alla aðstoð í starfsemi þeirra. 6 81