18. grein. Lögum þessum er ekki hægt að breyta nema á aðalfundi, og skulu breytingar- tillögur vera komnar til félagsstjórnar 14 dög- um fyrir aðalfund. Leggi félagsstjórn fram laga- breytingar, skai hún senda þær deildunum, um leið og hún boðar aðalfund. 19. grein. Lög þessi eru samþykt af miðstjórn Alþjóðasamhiálpar verkalýðsins, og breytlngar á þeim eru því að eins gildar, að þær hafi öðlast samþykki hennar. Dýpi hafsins. Fram til ársins 1926 var mesta hafdýpi, sem mælt hafði verið, 9788 metrar. Þessi mikla lægð er í Kyrrahafinu nálægt Karólínu-eyjum og var mæld með gömlu aðferðinni, lóðun, sem var, eins og kunnugt er, framkvæmd á þann hátt, að þungt lóð var fest í band og rent alla leið til botns. En nú á síðustu' 3 árum liafa menn notað nýjar aðferðir til dýptarmæl- inga. Hljóðmerki er sent frá yfirborði hafsins. Hljóðið fer til botns, endurkastast frá botnin- um og heyrist sem bergmál uppi við yfirborðið ei'iir nokkra stund. Menn vita nákvæmlega, hve hratt hljóðið berst í sjónum. Dýptarmælingin er ]>ess vegna í því fólgin, að ínæla nákvæmlega tíinann, sem liður milli þess, að hljóðmerkið er sent, og þangað til bergmállð kemur aftur upp að yfirborðinu. 82