Tækin, sem notuð eru til þessara hljóömæl- inga, eru orðin aíar-fullkomin. Lampar eru not- aðir í þeim likt og í útvarps-viðtækjum. Mæl- ingin gengur svo fljótt, að skipið þarf ekki að nema staðar, meðan lóðað" er. Með þessari aðferð hafa menn fundið enn þá meira dýpi en áður þektist. Það er í vestanverðu Kyrra- hafinu. Á nokkurra ferkílómetra svæði hefir verið mælt yfir 10 000 metra dýpi á 11 stöðum, en mest 10 610 metrar. Það er mesta dýpi, sem menn þekkja nú. Sjávarbotninn breytir sér nokkuð, eins og kunnugt er. Hann hækkar og lækkar, en venju- lega mjög hægt. Þó koma snöggar breytingar fyrir, helzt þó af umbrotum elds eða gosum á mararbotni. Qeta þá jafnvel eyjar komið upp, þar sem áður var allmikið dýpi, og skipaleiðir breyzt. Þá getur þessi handhæga og fljótlega mælinga-aðferð komið að miklum notum. Hér myndi hún einnig geta komið að góðuin notum. Víða eru skipaleiðir ómældar hér við land. Líka þarf að leita að nýjum fiskimiðum umhverfis landið, og þá koma nákvæmar dýpt- armælingar að miklu Iiði, þótt fleira þurfi að athuga í því sambandi. Ætti að búa eitt af varðskipunum íslenzku að slíkum tækjum, og gæti það stundað mælingar að nokkru gagni jafnframt landhelgisvörzlunni. 83