skifta og menningar, sem hann á að vera. Nútíminn krefst meiri hraða. Og sá, sem ekki getur fylgt, hlýtur að dragast aftur úr. Við megum ekki við því, Islendingar, að dragast aftur úr rás menningarinnar. 3. Nokkrar upplýsingar fyrir almenning. Til flutnings tneð pöstum taka pósthúsin á móti: a. aimennum póstsendingum (brefum, bróf- spjöldum, prenti og sýnishornum), b. bréfum með tilgreindu verði, c. bögglum (almennum og með tilgreindu veröi), d. póstávísunum, e. póstkröfusendingum, f. póstinnheimtum, g. blöðum og tímaritum, scm skráð eru til flutnings hjá póststjórninni. Pósthúsin eru opin frá kl. 10 árd. til kl. 6 síðd. á virkum dögum. 1 Reykjavík er bréfa- póststofan opin frá kl. 10 árd. til kl. 6 síð- degis á virkum dögum og frá kl. 10 -11 árd. á helgidögum. Bögglapóststofan er opin virka daga kl. 10 árd. til kl. 5 síðd. Póstkassarnir í Reykjavík eru tæmdir kl. 8 árd. alla daga og auk þess kl. 2 og kl. 4 síðd. virka daga. Póstkassinn á pósthúsinu er alt af tæmdur fáum mínútum áður en póstar fara. Bréf eru borin út í Reykjavík kl. 9 árdegis og kl. 3 síðdegis. Á helgidögum þó að eins kl. 9 árd. 90