g. Blðð og timarit. sem tekin eru lil flutnings samkvæmt 2. gr. g. póstlaganna, skulu uppfylla þessi skilyrði: Hvert blað eða tímarit skal hafa áskrifendur, koma út einu sinni á ári að minsta kosti, vera eins prentað í livert skifti, og hafa sama titil og vega ekki yfir 250 gr. hvert eintak. Áður en blaðið eða tímaritið fæst sent, skal sá, sem er ábyrgðarmaður þess gagnvart póststjórninni, skýra henni frá: 1. Ósk sinni um, að blaðið eða timaritið verði flutt samkvæmt 11. gr. g, póstlaganna. 2. Nafni blaðsins eða tímaritsins. 3. Hve oft það komi út á árinu. 4. Á hvaða pósthús því verði skilað til flutnings. 5. Þyngd hvers eintaks. Innritunargjaldið er 3 kr. fyrir hvert blað eða tíinarit og greiðist um leið og blaðið er tekið til flutnings í fyrsta sinni og síðan í byrjun hvers árs. Blöð og tímarit, sem þannig eru send, mega vega 5000 gr. hver sending með skipum, en 2500 gr. með landpóstum. Stærðin má vera 50X.24>'24 sm. Burðargjaldið er 25 aurar fyrir hver 500 gr. eða minna frá 15./4. 14-/10. og 50 aurar fyrir hver 500 gr. eða minna frá 15./10. 14./4. Póststofan í Reykjavík tekur að sér að búa um og rita áskrift á blöð eða tímarit, sem koma út einu sinni í viku eða sjaldnar og hafa ekki yfir 2000 áskriíendur, gegn Va eyris gjaldi fyrir livert blaðnúmer eða heftí og 4 aururn fyrir hvern áskrifanda. Móttökukvíttun: samtímis 20 au., eftir á 40 au. Fyrirspurn uiii sendingu: 40 au. 94