stimplað með ógift" og gift" strikað út. Sú skoðun ríkir, að ósk annars hjónanna til að leysa upp hjónabandið sé nægileg ástæða fyrir skilnaði. Þar til fyrir nokkru gat fólk gifzt og skilið á sama degi á sömu skrifstofunni. En þessi stuttu hjónabönd voru orðin svo ægilega mörg, að ný reglugerð var sett þess efnis, að skiln- aður fengist ekki fyrr en nokkrum vikum eftir að hjónabandið var skrásett. Gjöld fyrir gift- ingar og skilnaði eru lítil, að eins 5 dollarar (ca. kr. 22,50). Takmörkun barneigna er jafnan mikils varð- andi atriði í kjörum kvenna í hvaða landi sem er. Eins og aðrar stjórnir, sem þurfa fjölda hermanna, hefir sovéf'-stjórnin lítinn áhuga á þessu máli og hvetur fólk til að eiga mörg börn. Þó eru engar lagahindranir fyrir út- breiðslu í þekkingu á takmörkun barnsfæðinga, og fóstureyðing er ekki skoðuð ólögleg. Pö er fóstureyðing ólögleg, ef hún er framin á ó- visindalegan hátt af einhverjum skottulækni eða grasakerlingu, sem ekki hafa kunnáttu eða tækifæri til að veita konunni þá hjúkrun, sem nauðsynleg er. Verkaroannskona, sem er þunguð, getur fengið fóstrinu eytt sér að kostnaðarlausu, eins og hún fær hverja aðra læknishjálp ókeypis i lækn- ingastofunni á vinnustað sínum. Þ6 skildist mér, að ætlast væri til, að hver sú kona, sem kæmi ril læknis til að fá eytt fóstri, yrði að færa fram einhverja gilda ástæðu, svo sem heilsuleysi o. s. frv., en mér skildist líka, að þetta væri að eins formsatriði. Læknirinn gefur 104