að líta eftir ungbörnum, gefa brjóstbörnum að sjúga o. s. frv, Þá er og annað, sem gerir verkamannakonum í Rússlandi auðveldara að vinna fyrir sér, en það er, hve vinnustúlkur fást fyrir lítið kaup. Þetta er þó að sumu leyti ilt, þvi að í Rúss- landi er fjöldi af vinnustúlkum og barnfóstrum, sem eru mjOg Htið greindar og fákunnandi til allra verka, og eru flestar þeirra sveitastúlkur. Því er líka haldið fram, að sáifræðileg áhrif þess að hafa persónulega þjóna séu ill fyrir siðgæðishugsjónir manna í riki öreiganna. Vinnustúlkur þessar eru allar í sérstöku verk- lýðsfélagi og verndaðar með tryggingum, sem vinnukaupendur borga, hafa tveggja vikna frí á ári með fullu kaupi, fá vinnuföt og skaða- batur, ef þeim er sagt upp vistinni, svo að þótt laun þeirra séu mjog lág (1015 dollarar á mánuði*)), njóía þær þó fullrar verndar þjóð- félagsins. Þetta lága kaup gerir það að verkum, að jafnvel iágt launaðar konur, sem vinna í verksmiðjum eða í skrifstofum, hafa efni á að hafa vinnustúlku til að gera heimilisstörfin og líta eftir börnunum. En sú húsmóðir, sem ekki á því fleiri börn, en hefir vinnukonu, má búast við fyrirlitningu og að vera kölluð borgari" og sníkjudýr". Kommúnisia"-flokkurinn er mótfallinn því, að konur þær, sem í flokknum eru, hafi vinnukonur, nema þeim sé algerlega ómögulegt að vinna starf sitt utan húss án þess. Á hinn bóginn halda aðrir, sem vilja fá að *) H6r miöar liól. vtð kaup vinnustúlkna i Aineriku, sem er mjOg hatt saman borið við islmnl, 5070 dollarar & már.uði (225315 kr.). 107