-um móðir, stundi vinnu utan heimilsins. Þetta heíir sérstök sálfræðileg áhrif á konuna, sem frá blautu barnsbeini hefir vanist þeirri hugsun, að hjónabandið sé hennar eina, sanna köllun. Kommúnisturn" þykir þetta ægileg sóun á faglrðu" verkafólki. Afleiðing þessa er sú, að flestar ungar stúlkur háiflæra einhverja iðn og vinna lélegt verk fyrir litið kaup til þess að halda í sér lífinu, þar til þær giftast. En annað er verra, og það er, að gáfaðar stúikur, sein hafa lært starfa sinn vel, verða að yfirgefa vinnu sína, þegar þær giftast, og taka til við heimilisstörfin, sem þær kunna ekkert til. Margar þessar konur eiga því ekki neln börn vegna óttans við að vera fastreyrðar við heimilið upp frá því, þvi að barnfóstrur hafa ekki aðrir efni á að halda en þeir, sem ríkir eru*)- Ef þær eignast börn, er það of seint að snúa sér að sinu fyrra starfi, þegar bðrnin eru orðin svo stálpuð, að þær gætu komist frá heimilinu. Svo að þrátt fyrir það, að konur verkamanna, sem vinnu hafa, eigi yfirleitt við miklu betri íjárhagsleg kjör að búa í Ameriku en i Rúss- landi, lifa þær fyrri þó leiðinlegra lifi, sí og æ bundnar önnum heimilisins, og mega aldrei um frjálst höfuð strjúka. Auðvitað spara þær sér mikla vinnu með nýtízku-vélum og áhöldum, sem ekki þekkjast í Rússlandi. En þar eru aftur heimilisstörfin fábrotnari, þar sem ibúðin er ekki nema eitt eða tvö herbergi, og mat- *) Sbr. |»irt, scnt áöur var sagt um kaup vinnustúlkna I Amerlku. 109