X r r 17.JUNI os~7 í í 3 0 5 1. árg. Nóvember 1922. 1. tbl. Öm leiö og eg sendi frá mjer fyrsfca tölublað af 17. JUNÍ, þykir mjer rjefct að láta fylgja því úr hlaði nokkur orð um tilgang þess. Fyrir mjer vakir fyrst með blaði þessu að reyna að vekja áhuga manna á íslandi á ýmsum þeim málum, er þjóðinni mega að liði verða í framsóknarbaráttu hennar. Mjer liggja ýms mál á hjarta sem eg sjaldan eða aldrei sje vikið að í íslenskum blöðum. Eg nefni þannig öll tryggingarmál. Pjóðin má ekki láta það lengur spyrj- ast, að hver sá, karl eða kona, sem af óviðráðanlegum ástæðum verði óvinnu- fær lengri eða skemri tíma, missi rjettindi sín í þjóðfjelaginu fyrir þegna hjálp. Þá vita menn líka, að eg hefi um langt skeið borið heilbrigðismál öll mjög fyrir brjósti, betri húsakynni, aukinn þrifnað og sjúkrahús. Lít þannig á. að bætt húsagerð, bæði til sveita og í kaupstöðum, og þar með útrýming illra húsakynna, sjeu meðal þeirra mála, sem þjóðinni beri að leggja hvað mesta áherslu á. Framkvæmdir á þessum málum hafa í för með sjer andlegt og lík- amlegfc heilbrigði í landinu. Framkvæmd á þessum sviðum verður sterkasti þátturinn í baráttunni við tæringuna sá þátturinn, sem haldbestur reynist og sem að siðustu leggur þann skæða óvin mannkynsins að velli. Sá er og tilgangur minn með blaði þessu að vinna að því, að koma Islend- ingum í nánara samband við umheiminn, og mun eg reyna að haga því svo, að hafa það eitthvað það, smátfc og stór, sem annaðhvort er til hvatningar á Islandi eða aðeins til fróðleiks. Þó hlýtur mönnum að skiljast, að mjög muni rúm vei'a takmarkað, í svo litlu blaði sem þessu. Annars fer alt eftir því, hverjar undirtektir blaðið fær á Islandi. Á því byggist tilvera þess og vöxtur. Eg skal að lokum'geta þess, að eiu af aðalástæðunum til þess að eg sendi þetta blað frá mjer er sú, að eg vil ekki láta aðra ákveða það, hvort skoðanir mínar sjeu þess verðar að koma fyrir almennigssjónir, eða fara í pappírskörfuna. Kaupmannahöfn, í nóvembermánuöi 1922. porfinnur Kristjánsson.