17. JUNI fyrirlestrum sendir ýmsum verk- mannafjelögum og þau úthlutuðu aftur meðal vinnulausra fjelaga sinna. K. F. U. M. ljet halda ekki færri en 50 fyrirlestra. Það lijelfc líka opinni stofu, þar sem vinnulausir gátu komið og setið; gátu þeir fengið þar fcöfl og annað til dægrastytfcingar. Kauprnanna- hafnarbær veitti ekki lítinn styrk til þessa. Lestrarfjelag verkamanna hjelt 10 skemtanir fyrir vinnulausa og ljeði Dansk Solistforbund 45 listamenn alls við þær skemtanir og sóttu þær 10,000 manns Það sjest af þessu, að hjer hefur ver- ið ýmislegt að hafa, bæði til skemtun- ar og fróðleiks fyrir vinnulausa verka- menn og höfum vjer þó aðeins drepið á það helsta. Hjer i landi eru menn ekki í nein- um efa um það, að þetta hafi haft menfcandi og góð áhrif á verkamenn. Líka má geta þess, að lestrarsöfn bæjarins voru á þessum tíma yfirful], geta menn setið þar og lesið öll nýj- usfcu blöð og bækur. Borg-araflokkur. Það er komið nýtt fiokksnafn upp á liinum pólitíska himni. Það er svo nefndur »Borgaraflokkur«. Hann er þannig fcil orðinn, að hin- um svo nefndu Hægri- og Vinstri- mönnum, eða hvað þeir heita allir þessir flokkar íhaldsmanna var far- ið að finnast nóg um vöxt og viðgang Jafnaðarmanna, og sáu, að til þess að rejma að hefta það, var eina ráðið að þessir flokkar hefðu bandalag með sjer um stjórnartaumana. Annað eiga þeir ekki sameiginlegt þessir flokkar; sem sjá má líka á því, að þeir skammasfc hátt og í hljóði inn- birðis. Það hefir verið talað um slíkt banda- lag milli íhaldsmanna nú við kosning- arnar á Englandi á móti jafnaðar- mönnum. En bestan spegil af þessari samvinnu hefur maður þó hjer í Dan- mörku um þessar mundir. Og þeir fara ekki í neina launkofa með það, hver tilgangurinn sje,- það er að verj- ast Jafnaðarmönnum svo lengi sem unt er. Stjórnarflokkurinn þorir ekki að rjúfa þingið og efla til nýrra kosn- inga, af ótta fyrir þvi, að þeir fái ekki meirihluta í Fólksþinginu aftur. Og liægrimenn þora ekki að demba van- trausti á stjórn Vinstrimanna, þótt þeir næstum sjeu neiddir til þess. Pessir flokkar verða að hanga saman, þó að samkomulagið sje ilt alt af ótta við Jafnaðarmenn. Þeir vita og viður- kenna það að næst sjeu það Jafnað- armenn, sem við taumunum taki í Fólksþinginu. Holstein greifi íhaldssinni sagði í Fólksþinginu í snmar: Látum Jafn- aðarmenn koma til valda nú, þeir koma það hvort sem er, þess fyrr fáum við völdin aftur! Hjer í Danmörku hefir hin svo nefnda »borgaralega« samvinna heft Jafnaðarmenn í bili. Þeir hafa aðeins, þessir flokkar, gefið sjálfum sjer hengingarfrest.