10 17. JTJNI þóttust vita, sögðu að Neergaard hefði sent boð eftir honum til að rjetta við »fínansana« hjer, því rikissjóður er nú ekki eins vel stæður og Kaupmanna- hafnarbær, en þar hefur Magnús verið á skrifstofu og því varð hann líka fjármálaráðherra á Islandi! Svo kom atvinnumálaráðherraim og var á ferðalögum um Norðurlönd fast að tveimur mánuðum. Menn vissu held- ur ekki í hvaða erindum hann var. Pað er vitanlega ekkert til þess að segja, að ráðherrarnir fari utan í nauð- synlegum erindum, en að þeir sjeu hjer allir í einni bendu, verður ekki sjeð að sje nauðsynlegt. Faseistar". »Fasoistar« nefnist fiokkur sem tek- ið hefir við stjórnartaumunum á Italíu. Nafnið draga þeir af latneska orðinu fasces sem þýðir hrísköstur eða lurk- kippa og stendur öxi upp úr hrískest- inum eða lurkkippunni. Pessi hreyfing á ítalíu eru eftir- dreggjar stríðsins, síðasti fjörkippur hins sjúka þjóðlíkama, knúinn fram af við- bjóðslegri valdafýkn hernaðar.tímabils- ins, þjóðfjelags aumingjaskap og hinni andlegu örvæntingu, er fylgdi eftir stríðið. Verkfræðingur nokkur ítalskur, af flokki »Fascista«, segir frá því í frönsku blaði, að þegar hermennirnir komu heim úr ófriðnum, hafi í stöður þeirra verið komnir menn, sem skotið höfðu sjer undan herþjónustu og verið friðar- sinnar og hafi þetta verið orsökin til þess að Italir báru ekki meira úr být- um eftir stríðið. Pá liafði dreimt um landvinninga, og að fá aftur hluta af Sviss, Fiume, mestan hluta af austur- strönd Adriathafsins með eyjunum og hluta af Litlu-Asíu og verða ráðandi við Miðjarðarhaíið. Mussolini, isem er foringi »Fascista« og forseti'í,ítalska náðaneytisins, er maður um fertugt, var á yngri árum sínum jafnaðarmað- ur en hvarf svo frá þeim skoðunum, var með i ófriðuum og særðist þar hættulega, safnaði svo um sig nokkr- um'fjelögum sínum og myndaði með þeim fyrstu spýruna til þessa fjelags- skapar, sem nú ræður lögum og lofum á ítalíu. Pað var nóg af hermönnum sem eftir ófriðinn enga vinnu gátu fengið, eða kærðu sig ekki lengur um algenga vinnu. Pað veittist þessum mönnum Ijett að útvega sjer vopn og annan herbúnað og fjelagsskap þessum jókst óðum fylgi, og er.nú tallinn hafa 1 milj. vopnaðra manna. »Fascistar« byrjuðu sem einskonar >þjóðhjálp« og tókst að eyðileggja fyr- ir verkamönnum allsherjaverkfall í Milano, lögðu undir sig sporbrautirnar og hjeldu öllum samgöngum uppi. Og þeir gerðu meira, þeir e^'ðilögðu bj'gg- ingar verkamanna víðs'vegar í landinu, ruddust inn á blaðskrifstofur þeirra, umhverfðu þar öllu og drápu leiðtog- ana. Peir gerðu jafnaðarmönnum ómögulegt að taka þátt í síðustu kosn- ingum, með óeyrðum og blóðugum bardögum á götum úti. »Fascistar« hafa sína eigin utanrikis- pólitík, eru andstöðumenn Englend- inga og hafa með því unnið samúð