Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

17. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



17. jśnķ

						16

17. juni

Næsta tölublað af 17. JUNI kemur

ekki fyr en í janúarmánuði, að öllu

forfallalausu. Blaðið verður fyrst um

sinn selt í lausasölu og kostar 35 aura.

Sölu á blaðinu annast hr. Stefán

Bunólfsson, Pingholtsstræti 1(5.

Blaðið tekur þakksamlega við grein-

um um ýms þjóðmál, stuttum frjetta-

brjefum af Islandi, úr kaupstöðum eða

sveitum og fræöandi greinum um ísl.

fyrirtæki, skóla og þess háttar. Allar

yrðu greinarnar að vera stuttar, vegna

þess hve rúmið er lítið.

Utanáskrift blaðsins er : Engtoftevej

2, 3. sal, Kbhv. V.

Mikið er um betl hjer í Kaupmannahúfn

um þessar mundir, ganga menn í hús og biðja

að gefa sjer ýmist peninga eða mat. Og á

götum úti verður maður stundum var við betl-

ara. fað er vitanlega liið langvarandi vinnu

leysi hjer í landinu, sem á sök á Jiessu.

Betty Nansen-leikhúsið heí'ur undanfaiið

leikið »Pjóðníðinginn<. Pað þótti oss gaman

að bera saman í huganum leikinn hjer og á

íslandi. Storkmann var alt öðruvísi leikinn

hjer en af hr. Jens H. Waagi, og fannst oss þó

vel um leik Waage. Gamli Mortin Kil var

ekki ósvipaður og heima en þó meira lifandi,

og gerður mjög úhreinlegur. — Pað vantaði

samleikinn á ísl. leiksviðinu.

Livet i Vold heitir leikrit eftir Knut Ham-

sun, sem Folketeatret er að leika. Hefnr rit-

höfundur Gumundur Kamban þýtt það og

sett í sinu og l&ta blöðin vel af.

Það eru víða lestrarsöfn hjer í Kaupmanna-

höfn, sem bærinn hefur sett á stofn og rekur.

Hjer geta menn setið og lesið blöð og bækur,

alveg eftir vild og eru J>au opin frá kl. 10  f,

m. til kl. 10 á kvöldin. Menn geta fengið

lánaðar bækur heim til sín af þessum söfn-

um fyrir 10 aura um mánuðinn.

Það heyrir til daglegum viðburðum um

þessar mundir, að bankar og stærri verslun-

arfjelög missi stórfje eða verði alveg gjald-

þrota.

Þannig hefur nýlega staðið hjer í dönskum

blöðum um enskan banka sem nýlega varð

gjaldþrota og varð að loka. Banki þessi var

notaður af hermálaráðaneytinu enska og alt

hlutafjeð og sparisjóður er þurausið, og það

ekki talið líklegt að bankinn geti greitt meira

til baka af sparisjóðseiginni, en 2 sh. af

hverjum 20. Tapið er áætlað 820,244 sterl-

ingspund.

„Tidens Kvinder" fiytur alveg nýlega eins-

konar þakkargrein til danskra kvenna, fyrir

sýnda samúð og skilning á málum íslenskra

kvenna; greinin er skrifuð af frá Stein. H.

Bjarnason, og fyigja 2 myndir frk Seyðisfirði

og ein af isl. stúlku (Asta málaii) á'upphlut.

fað er verkefni fyrir ísl. konur, að koma

sjer upp samkomuhúsi, einskonar miðstöð,

þar sem konur aí' öllu landinu mætast, með

það fyrir augum, að menta og þroska íslensk-

ar konur. far ætti að vera bókasafn og les-

stofur, fundarsalur, ritstjórn blaðsins og ann-

að þessháttar. Og það sem ekki setti að

vanta, væri slikt hús komið, eru veitingar

i'yrir konur, þar sem þær gœtu f'engið kafli

og ódýran mat. Konur úr sveitum eru oft í

vandrædum að J>essu leyti, J;egar J>ær koma

til Reykjavíkur. Vjer erum Jiess fullviss, að

slíkt hás mundi sameina ísl. konur í menn-

ingarbaráttu J>eirra og gera þær sterkari.

fað er vitanlega þarft verk að koma upp

bústað fyrir gamalt fólk í Reykjavik, en að

kássa J>ví saman, eins og ráðgert er vegna

Jwengsla, ætti ekki að líðast.

Ritstjóri:   forfinnur Kristjánsson.

Prentað hjá S. L. Möller,

Kaupmannahöfn.                 MS7Í0

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16