9 sem hrópi hvert brjóst úti um dali og strendur. Og það er sem bergmáli blágrýtishallir með brennandi turna: »Vér mótmælum aHirl" VII. Nær átti vor fjallkona fríðara þing? Nær fagnaði djarfari sonum og kærri vor ubláfjallageimur með heiðjöklahríng«? Nær hlutum vér munablóm fegurri og stærri? Nær hljómaði indælar »ylhýra málið«? Nær önduðu bjartari geislar á stálið? Ég finn þá í vorinu: vökulan þey, sem vitjar mins hjarta á sólglöðum degi. Og fremstur hann líður, sem firrist oss ei, þótt fjúki í skjólin og svanurinn þegi. Hann svífur á undan og uppljómar veginn um Island ef þjóðin er sannleikans megin. Til skýrhigar á kvæði Jóhannesar úr Kötlum um Jón Sigurðsson, skal það tekið fram, að eftir þjóðfundinn myndaðist alþýðusögn um það, að dönsku hermennirnir hefðu, ef upphlaup yrði, átt fyrst af öllu að skjóta þrjá þingmennina, og var Jón Sig- urðsson kallaður í fyrirskipuninni sá hvíti", Jón Guðmundsson sá halti", og Hannes Stephensen sá digri".