Haraldur Guömundsson: Bjartsýni. Væri ég spurður þess, hvern af eiginleikum Jóns Sigurðssonar mér þætti mest um vert, myndi ég hiklaust svara: bjartsýnina trúna á ís- lenzku þjóðina. Enginn íslendingur hefir verið bjartsýnni en hann. Eng- inn glöggskyggnari á auðæfi íslenzkrar moldar og miða. Enginn sá betur þá orku, sem með þjóðinni bjó og barátta hans leysti úr læðingi. Jón Sig- urðsson efaðist aldrei um, að íslenzka þjóðin væri fær um sjálf að skipa sínum eigin málum. Hann var þess fullvís, að ísland væri svo gagn-auðugt og þjóðin svo vel til manns, að allir Islendingar gætu búið við sæmileg lífs- kjör, efnalega og andlega. Hugsjónir Jóns Sigurðssonar eru nú sumar orðnar og aðrar að verða að veruleika. Nærfellt 20 ár eru liðin síðan sjálfstæði íslands og fullveldi var yfir- lýst og viðurkennt. Á þessu árabili hafa stórfelldari breytingar og framfarir orðið á flest- um sviðum, en nokkru sinni fyrr. Innan fárra ára taka íslendingar sjálfir í eigin hendur meðferð þeirra málefna, sem þeir til þessa hafa eigi haft sjálfir að öllu leyti. Þjóðskólahugmynd Jóns Sigurðssonar er að verða að veruleika. At- vinnudeildin tekur til starfa í næsta mánuði og háskólabyggingin kemst undir þak í sumar. Tún og garðar stækka með hverju ári. Fossar og jarðhiti þjóna fólk- inu. Iðnaðinum fleygir fram. Fiskitegundir, sem áður voru taldar eng-