15 ráði við utanríkismálanefnd, þá tilhögun á meðferð utanríkismála, inn- anlands sem utan, sem bezt kann að henta, er íslendingar neyta vipp- sagnarákvæðis sambandslaganna og taka alla meðferð málefna sinna í eigin hendur. Tillögur um mál þessi sé síðan Iagðar fyrir Alþingi". Samvinna Norðurlanda er hugsjón, sem margir starfa að í þessum löndum. Til eru þeir menn, er ætla, að uppsögn sambandslaga-samn- ingsins bryti bág við þessa hreyfing. En svo er eigi. Það horfir öfugt við. Einn af hyrningarsteinum þeirrar stefnu er sá, að hún standi utan alls stjórnmálasambands. Enginn hefir lagt ríkari áherzlu á þetta meginat- riði en forsætisráðherra Dana. Ryðjum þeim hömlum úr vegi að vor- um hluta, er staðið geta fyrir samhug frændþjóðanna. Garður er granna sættir. Svo er g.engið frá ákvæðum sambandslaga-samningsins, að ýmsir málsmetandi menn hafa talið mjög tvísýnt, að nokkru sinni náist lög- legur meirihluti fyrir sambandsslitum og tekið fram, að til þess þurfi meiri eining, en oss er gefin hversdagslega. Satt er það, að engin sundrung má um þetta mál verða, ef duga skal. Munum-atkvæðagreiðsluna í Saar, sem allur heimur dáðist að.Blás- um ekki að sundrungarglæðunum. Drepum þeim á dreif. Sameinum kraftana. Hér er stórt takmark öllum æskulýð að að vinna til fulira úrslita með fullkomnum og fögrum sigri. Island fyrir Islendinga.