Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

17. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



17. jśnķ

						20

vissu að öruggasta ráðið til að brjóta niður slíkt vald, var að kosta kapp's

um að efla manngildi sérhvers einstaklings í landinu. Ungmennafélögin

sáu það alveg rétt í upphafi, að lýðræði án almennrar upplýsingar er ekki

hugsanlegt. En hitt vissu þau eins vel, að þar í landi sem ríkir almenn

upplýsing, getur ekki skapazt fótfesta undir annað fyrirkomulag en lýð-

ræði. í landi, þar sem þjóðin á almennri upplýsingu að fagna, er óhugs-

andi að það vald, sem lifir á sljóum múg, eins og óþrif og afæta, geti leik-

ið listir sínar. Eitt af einkunnarorðum Ungmennafélaganna var „hraust

sál í hraustum líkama", og í samræmi við þetta einkunnarorð beittu fé-

lögin sér fyrir andlegri og líkamlegri menningu jöfnum höndum: samfara

h'kamlegum íþróttum, ýmiskonar fræðslustarf, málfundir, fyrirlestra-

starfsemi, blaðaútgáfa.

Ungmennafélögin voru frá upphafi ungt og sterkt afl, sem gerði upp-

reist í landinu gegn því kúgunareðli, þeirri sátt við kúgunina, sem hafði

verið barin inn í gamla fólkið allt frá dögum Bessastaðavaldsins; virðing-

in fyrir vendinum, truin á hið framandi vald, hinn troðandi hæl, var sam-

gróið eðli gamla tímans. Þúsundir ungra manna og kvenna í sveitum

landsins harðneituðu því að vera sljór búpeningur, sem haldið væri í raun-

verulegu eignarhaldi hjá framandi sérréttindavaldi. Þetta fólk vildi eiga

sitt land og ráða því. Það vildi efla þess dáð. Það vildi að almenningur

fengi fyrst og fremst að njóta hinna andlegu og veraldlegu verðmæta lífs-

ins, ætti sjálfur umráðin yfir mentastofnununum, verzluninni, auðlind-

unum, atvinnutækjunum; það vildi ekki að framandi, fjandsamlegt vald

hefði einkarétt á þessum hlutum; það vildi að þjóðin sjálf, íslenzkur al-

menningur, nyti einn þess auðs, þeirrar menntunar og þeirra lífsþæginda,

sem full umráð þessara hluta geta veitt.

Um það leyti, sem sigurinn var unnin 1918, voru ýmsir forkólfar

Ungmennafélaganna af léttasta skeiði. Þeir hurfu frá vakningarstarfinu

til ýmsra ábyrgðarstarfa í þjóðfélaginu. Eftir stóðu Ungmennafélögin

dokandi. Sumir héldu því fram í einfeldni, aðrir af tvöfeldni, að sigurinn

1918 táknaði einhvern lokaáfanga, að með sigrinum væri almenningur

í landinu búinn að losa sig undan yfirráðum fyins framandi fjandsam-

lega valds fyrir fullt og allt.

Það þurfti nýja kynslóð til að uppgötva að 1918 var aðeins áfangi í

baráttunni fyrir sjálfstæði almennings á Islandi; að enn var mikið óunn-

ið til að gera almenning í landinu svo sterkan til líkama og sálar, svo upp-

lýstan og stórhuga, að hann heimti í sínar hendur hið eina fullnaðarvald,

sem honum sómdi; að enn fór því fjarri að sérhver menningargersemi,

sérhver auðlind, hvert fyrirtæki, hver stofnun í landinu væri fyrst og

fremst menningarverðmæti almennings, auðlind almennings, fyrirtæki

almennings, hins endurborna íslenzka almennings til sjávar og sveita, þess

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV