Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

17. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



17. jśnķ

						25

rök að því, að fyrir menningarþjóðir með fjölþættum félags- og atvinnu-

háttum eru skólarnir óhjákvæmilegir hyrningarsteinar viðhalds og

framfara. Hann b.enti á, að í hendur þyrfti að haldast skólar fyrir al-

menning, svo sem barnaskólar og bændaskólar, skólar fyrir ýmiskonar

sérfræði, svo sem iðjugreinar og verzlun, og loks hinar æðstu mennta-

stofnanir, þar sem vísindin skipuðu öndvegi. Þá lagði hann enn áherzlu

á, að stjórn skólamálanna og eftirlit með skólastarfinu ætti að vera

áhrifamikið, liðugt í vöfum, og auðvitað með aðsetur í landinu sjálfu.

Jón nefnir táknandi dæmi um skrifstofustjórn íslenzkra skólamála í

höndum Dana: „Um haustið 1839 kom bréf skólastjórnarráðsins til ís-

lands um að gefa skyldi út skírslur um ástand skólanna. Um vorið 1840

kom bréf um það, í hvaða broti skírslurnar ætti að vera, en þá vantaði

nú á Islandi nýtt boðorð um það, hvort skírslan ætti að vera á íslenzku

eða dönsku, og fyrir því það var ekki fengið, gat ekki komið nein skírsla

það ár (1839—1840). 29. júní 1840 skrifar Lector til skólastjórnar-

ráðinu, að spyrja um á hvaða máli skírslan ætti að vera, og 15. maí

1841 kom svar aptur, að skírslan ætti að vera á islenzku"1).

Síðan á dögum Jóns Sigurðssonar hafa miklar og margvíslegar

framfarir orðið í skólamálum vorum: Innlendur háskóli, endurbættur

menntaskólinn í Reykjavík og annar reistur á Akureyri, gagnfræðaskól-

ar, héraðsskólar, bændaskólar, kennaraskóli, kvennaskólar og margs-

konar sérfræðiskólar, og loks fjöldi barnaskóla víðsvegar um landið.

Það er ekkert efamál, að Jón Sigurðsson myndi hafa glaðzt innilega

yfir því, að sjá öll þessi menningartæki blómgast í landinu. Hitt er

annað mál, hvort hann hefði talið uppeldis- og skólamálum vorum

komið í æskilegt horf. Ummæli Jóns í nefndri ritgerð, gefa hér um á-

kveðnar bendingar:

,,. . . en það er þó nauðsynlegt, að vér gjörum oss fulla og skíra

grein fyrir, hversu á stendur skólum yfirhöfuð, hverr tilgangur þeirra

sé, um leið og vér höfum hliðsjón af ætlunarverkum skóla í öðrum

löndum, því einungis með því að bera lögun skólans saman við það,

sem hún œtti að vera, og bað sem aðrir ná á vorri öld, getum vér séð

hversu hagur hans er, og hverja stefnu vér eigum að taka í umbótinni,

en ekki sézt það glöggliga á því, einungis að bera ástand hans nú sam-

an við það sem það hef ir verið"2).

Þegar litið er á málið frá þessu háleita sjónarmiði Jóns Sigurðs-

sonar, sjáum vér strax, að þrátt fyrir miklar framfarir undanfarinna

ára fer því mjög fjarri, að við svo búið megi standa stundinni lengur.

])  Ný félagsrit II. árg. bls. 150.

^)   Op. cit. bls. 69—70.

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV