Hitt og þetta. Æskulýðsfundur í Þrastaskógi. Ungmennasamband Kjalarnesþings og Héraðs- sambandið Skarphéðinn í Árnes- og Rangárvallasýslum hafa tekið höndum saman um að boða til almenns æskulýðsfundar um stefnumál ungmennafélaganna, i Þrastaskógi, 25. júlí í sumar. Þar munu nokkrir valdir ræðumenn skýra viðfangsefni félaganna og stefnu, hingað til og' fi'amvegis. Sérstaklega mun þó fundurinn verða helgaður megin- vandamáli líðandi stundar meðal allra þjóða: baráttunni fyrir friði meðal ))jóðanna og rétti allra einstaklinga til að ráða málum sínum og njóta hæfileika sinna, kröf- unni um frið, lýðræði, menningu. Á fund þenna eru boðnir og velkomnir, allir beir æskumenn, konur og karlar, sem takal vilja undir þessa kröfu með ungmennafélögun- um og vinna með þeim að hverskonar menningarmálum. Iþróttir. Ungmennafélögin kölluðu æskulýð þjóðarinnar til íþróttaiðkana þegar í öndverðu, og þau áttu áberandi mikinn þátt í þeirri sterku íþróttahreyfingu, sem hér reis fyrir iiál'. 30 árum. U.M.F.Í. hélt fyrsta allsherjarmótið, 17. júní 1911. En þegar Í.S.Í. var stofnað 1912, tók það eðlilega við aðalforgöngu iþróttamálanna og forstöðu allsherjarmótsins. Um 25 ára skeið hafa Í.S.Í. og U.M.F.Í. unnið saman að eflingu íþrótta og líkamsmenningar með þjóðinni, og hefir aldrei borið skugga á sam- vinnu þeirra. I dag hefst 26. allsherjarmótið á íþróttavellinum1 i Reykjavík. Ungmennafélögin fagna hverri drengilegri dáð, sem þar verður drýgð. Megi þetta mót verða íþrótta- mönnunum til sem mestrar sæmdar og íþróttasambandinu og öllum landslýð til óbland- innar ánægju. Sögurit um Ungmennafélögin. Magister Geir Jónasson sagnfræðingur á Akur- eyri hefir unnið í þjónustu U.M.F.Í. um nokkurra mánaða skeið við að rannsaka sögu ungmennafélagshreyfingarinnar í landinu undanfarin 30 ár og áhrif hennar á þjóð- lífið, hugsunarhátt manna og gang' og úrslit þjóðnýtra mála. Skrifar 'hann bók um þetta efni, og á hún að koma út í haust eða fyrir næstu jól. Ráðgert er, að hún verði 12% arkir (200 bls.), mjög vönduð útgáfa með allmörgum myndum. Áskriföndum verð- ur safnað, áður en bókin kemur út. Aukafélagar % U.M.F.Í. Á liðnum 30 árum hefir, sem að líkum lætur, mikill f jöldi manna elzt út úr ungmennafélögunum, horfið þar frá störfum, þegar annir og' skyld- ur fullorðinsáranna kölluðu þá frá viðfangsefnum æskunnar. Undantekningarlítið er þetta fólk tengt órjúfandi böndum við félögin og hugsjónir þeirra, er þeim vinveitt og vill gjarna vinna þeim gagn; þó að það sjái sér ekki fært að vera virkir félagsmenn. Marga slíka velunnendur eiga félögin einnig meðal manna, sem aldrei hafa verið virk- ir félagar. Þessir menn gætu sýnt U.M.F.Í. vinarhug sinn og veitt því mikilsverðan stuðn- ing, með því að vera aukafélagar þess, æfifélagar eða styrktarfélagar. Æfifélagar greiða í sambandssjóð 50 kr. í eitt skipti fyrir öll. Styrktarfélagar eru þeir, sem greiða hærra gjald. Þessir óvirku félagsmenn fá Skinfaxa ókeypis, eins og' aðrir ungmenna- félagar og hafa hvarvetna málfrelsi og tillögurétt í félögunum,