Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Gegn fasismanum

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Gegn fasismanum

						CEGN    FASISMANUM

Verjum Thalmann, Torgler,

Dimitrow og aðra félaga!

í dag, 21, september, er einn hinna ör-

lagaþrungnu daga í sögu byltingarsinn-

aðrar hreyf ingar öreiganna, þegar hjörtu

allra öreiga slá í takt.

I byrjun þessa árs var þýzka auðvaldið

komið á það stig þróunar sinnar, að það

varð að grípa til þeirrar stjórnaraðferð-

ar, sem kallast fasismi, þ. e. opið einræði

borgarastéttarinnar. — Byltingarsinnuð

hreyfing verkalýðsins var þó svo sterk, að

nauðsynlegt varð að nota alveg sérstök

klókindabrögð, til þess að veikja vináttu

smáborgaranna til forystuflokks verka-

lýðsins og skilja frá, ef mögulegt var hinn

óstéttvissari hluta. Eitt af þeim ráðum,

sem fasistastjórnin þýzka fann þá upp, var

að kveikja í ríkisþingsbyggingunni í Berlín

og kenna það forstöðuflokk verkalýðsins,

kommúnistaflokknum. Þetta skeði 28. fe-

brúar. Daginn eftir var þegar hafin eins-

dæma ofsókn á hendur kommúnistum og

frjálslyndum verkamönnum. Hnepptir

voru í fangelsi, Thálmann foringi komm-

únistaflokks Þýzkalands, Torgler formað-

ur þingflokks kommúnista í ríkisdeginum

og þúsundir verkamanna og kvenna. Síðan

hefir ofsóknunum ekki lint. Kvalir, pynd-

ingar, dauði; það hafa nú á annað rnisseri

verið hlutskipti þýzks verkalýðs. Nú sitja á

annað hundrað þúsundir í fangelsum og

fangabúðum. Dagiega eru menn í tuga og

hundraðatali pyndaðir til dauða. Þettá var

tilgangurinn með ríkisþingsbrunanum, sem

þegar fyrir löngu hefir sannast, að stjórn-

að var af blóðhundinum Göring og unnið af

hinni blóðidrifnu Hitlersveit nr. 33, sem

seinna varð að leysa upp vegna þeirrar ó-

beitar, sem hún var farin að fá á starfi sínu

í þágu landaðalsins þýzka og járnhöldanna

við Rín.

Eigi aðeins bioð kommúnista, heidur

einnig frjálslynd borgarablöð hafa fyrir

löngu sýnt öllum heiminum fram á eðli og

uppruna þessa glæps, sem borgarastéttin

þýzka hefir framið. Hún hefir því neyðst

til að láta fara fram málamynda rannsókn

núna í Leipzig til þess, á „lagalegan hátt",

að halda lygum sínum áfram. Eins og vitan-

iegt er, hafa margir hinna beztu iögfræð-

inga heimsins boðist til að taka að sér að

verja hið augljósa mál Thálmanns, Torg-

lers og annara félaga, sem ákærðir eru fyr-

ir ríkisþingsbrunann. En árangurslaust,

aðeins vildarmenn stjórnarinnar fá að

vera verjendur. Enda hefir Hitler þegar

fyrir löngu kveðið upp dómínn — heng-

ingu!

í dag hefjast réttarhöldin í Leipzig. Á

sama tíma mun hef jast réttarhöid í London,

þar sem frægir málafærslumenn frá öllum

löndum taka mál þessi til lagalegrar með-

ferðar. Öllum þeim, sem eitthvað hafa að

segja, er boðið þangað [til yfirheyrslu og

skýringa. Allar skýrslur og skjöl verða

gerð heyrum kunn og jafnóðum símuð út

Um heiminn.

Hvað er það nú, sem á að^fara að gera í

Leipzig í dag?

I Leipzig fara fram réttarhöid einhvers

ógeðslegasta morðingja veraldarsögunnar

yfir nokkrum hinna glæsilegustu foringja,

sem verkalýðurinn hefir átt.

Viljið þið, verkamenn og mentamenn,

líða þetta?

Nei, við skulu'm ekki líða það. Við,

verkamenn og mentamenn hér á íslandi,

erum einn hluti þeirrar stéttar, sem ráðist

er á í dag í Leipzig.

Við mótmælum dómsmorðunum, sem á

að fara að fremja.

Við söfnumst saman og mótmælum

þeim. Við fylkjum okkur í kröfugöngur

og mótmælum þeim. Við verjum líf Thál-

manns, Torglers, Dimitrows og Tanews.

fslenzkir verkamenn og konur, öll sam-

taka með verkalýð og mentamönnum alls

heimsins og við munum sigra!

**m*>

Hönd Hitlers

á íslandi.

Þýzkur maður, Helmut Stolzenwala að

nafni, hefir verið búsettur í Vestmanna-

eyjum síðustu sjö ár og stundað þar klæð-

skeraiðn. Er hann kvæntur íslenzkri konu

og dvelur barn þeirra, 5 ára gamall dreng-

ur, nú hjá foreldrum Stolzenwalds í Berlín.

í síðastliðnum mánuði tók Stolzenwald

sér f ör á hendur til Reykjavíkur með þýzka

herskipinu „Meteor", eftir boði varakon-

"súls Þjóðverja í Vestmannaeyjum, Jóhanns

Jósefssonar. Á leiðinni til Reykjavíkur

hafði Stolzenwald tal af hásetum skipsins,

barst vígbúnaðurinn í heiminum í umræð-

urnar og lýsti hann sig andvígan vígbúnaði

og talaði um ófriðarhættu þá, sem augsýni-

lega væri yfirstandandi. Undirforingi af

skipinu, sem hlustaði á tal þeirra kærði

Stolzenwald fyrir foringja skipsins, sem

hindraði það, að hann fengi að vera innan

um hásetana, það sem eftir var ferðarinn-

ar. —

Þriðjudagsmorguninn fór Stolzenwald á

sjúkrahús héraðslæknis í Vestmannaeyj-

um til þess að heimsækja tvo slasaða tog-

araháseta, sem lágu þar. Hefir það verið

venja hans að aðstoða þýzka sjómenn, sem

oft dvelja í Vestmannaeyjum vegna slys-

fara við vinnuna. En í þetta sinn var hann

stöðvaður af sjúklingnum, sem sagði hon-

um að hann mætti ekki heimsækja sig.

Er enn á huldu um ofbeldisráðstafanirn-

ar, sem bak við liggja.

Hótanir konsúlsins.

í fjærveru Jóhanns Jósefssonar gegnir

Karl Jónasson þýzkum konsúlsstörfum í

Vestmannáeyjum. Isleifur Högnason fór á

fund hans og spurðist fyrir um hverju þetta

framferði sætti og hverskonar fyrirskip-

anir konsúlatið hefði gagnvart Stolzenwald.

Hann brást reiður víð og sagði að það

væri bezt fyrir Stolzenwald að haf a sig hæg-

an og gera þetta ekki að opinberu máli,

því það gæti orðið hættulegt fyrir hann.

Því er og fleygt í Eyjum, að þýzka stjórn-

in geri kröfu til þess að fá Stoxzenwald af-

hentan til Þýzkalands. Þetta er aðeins eilít-

il mynd af ofbeldisráðstöfunum þýzku

morðstjórnarinnar, sem daglega gerast í

þúsundatali. Stolzenwald hefir nú sent

beiðni til Alþingis um að fá íslenzk ríkis-

borgararéttindi. Andstæðingar fasismans

verða að sjá um að honum verði veittur

þessi réttur nú strax á næsta þingi, svo

hann geti fengið barn sitt heim úr „þriðja

ríki" morðingjanna. —

Ábyrgðarmaður: Einar Olgeii-sson.

ísafoldarprentsmiðja h.f.

Varnarlið verkalýðsins

heldur fund í Bröttugötu föstudaginn

22. sept. kl. 8 e. h. — Mætið stundvís-

lega, því fundurinn á að vera búinn kl. 9.

Stjórnin.

Hitlers-þýin í Alþýðuflokksstjórninni.

Verkamönnum út um allan auðvalds-

heiminn hrís hugur við, í hvert sinn, er þeir

sjá morðtáknið þýzka, hakakrossinn blakta

við hún. Það minnir þá á allar kvalir, sem

þýzki verkalýðurinn verður að þola undir

því merki, — og á skelfingarnar, sem þeir

sjálfir eiga í vændum, ef fasisminn sigrar.

Þess vegna skoða verkamenn það alstaðar

sem heilaga skyldu sína, að votta hinum

þjáða, þýzka verkalýð samúð sína með því

að berjast gegn kvalatákninu — og jafn-

framt er það einn liður í baráttu þeirra

gegn fasismanum innanlands.

En kratabroddarnir, sem í Þýzkalandi

ruddu fasismanum braut, halda því áfram í

öllum öðrum löndum — og það sýndi sig

sérstaklega áþreifanlega í „Diönu"-slagn-

um. Þeir gáfu út yfirlýsingu um, að Dags-

brúnarmenn mættu vinna, þrátt fyrir það,

þó kratabroddarnir hefðu „óbeit" á Hitlers-

stjórninni. Við vitum hvernig þeh'ri óbeit

er varið: Þeim svíður það, að það skulu ekki

yera krataforingjarnir, sem láta drepa for-

vígismenn þýzka verkalýðsins, eins og þeir

drápu Liebknecht og Rosu Luxemburg, —

þeim svíður, að það skuli ekki vera sósial-

demokratiskur lögreglustjóri í Berlín, sem

lætur skjóta niður verkamenn — eins og 1.

maí 1929, þegar þeir drápu 30 verkamenn

þar. Kratabroddarnir hafa óbeit á Hitle?-,

af því að hann hefir orðið ofan á í sam-

kepni(nni um að þjóna auðvaldinu með

viðeigandi aðferðum, — en af sömu á-

stæðum vilja þeir heidur enga baráttu heyja

gegn honum.

Héðinn Vald. er svo sendur af örkinni

til'að reyna að verja framferði þeirra. l>að

er mjög erfitt fyrir slíkan sósíalfasista

að standa frammi fyrir verkalýðnum, dag-

inn eftir að hann er hyltur af fasistaskríl

Reykjavíkur fyrir störf sín í þágu Hitlers.

H. V. reynir að ljúga sig út úr klípunni.

Hann segir að hakakrossskip hafi verið af-

greitt með rússneska olíu í Stdkkhólmi.

Þetta eru ósannindi. Verkamenn, u'ndir

f orustu kommúnista gerðu verkf all, þang-

að til hakakrossinn var tekinn niðu?.

Sama var gert í Höf n, Odense, Aabenraa og

víðar, en alstaðar reyndu kratabroddarn-

ir að svíkja. — Næstu ósannindi H. V. og

Alþbl. eru, að kommúnistar hafi ekki reynt

að stöðva „Norden" á Akureyri. Sannleik-

urinn er, að skipið var stöðvað í nokkra

tíma, Verkamannafél. Ak. bannaði vinnu

við það, en sökum þess hve kratabroddarnir

með klofningi sínum hafa veikt verklýðs-

samtökin á Akureyri, biðu þeir ósigur.

Svo kórónar H. V. hræsni sína og svik-

semi með því, að reyna að telja verkalýð

trú um, að kratabroddarnir ætli að koma

Hitler „á knén skjótlega"(!) með því að

hætta að kaupa þýzkar vörur. Hve hættuleg

þessi „bardagaaðferð" er þýzku nazistun-

um og hver alvara fylgir máli, sést af því,

að stærsti kaupandinn á Islandi af einum

stærsta auðhring Þýzkalands (A. E. G.) er

Raftækjaverzlun íslands, m. ö. o. helstu

kratabroddar íslands eins og Sigurður Jón-

asson, Jón Bald. og Ingimar Jónsson.

Nei, hlýðnara þý, en Héðinn Vald, getur

íslenzk ríkisstjórn og íslenzkur fasismi

ekki óskað sér. —

Skilyrði fyrir sigri verkalýðsins yfir fas-

ismanum er sigurinn innan verklýðsstétt-

arinnar yfir kratabroddunum.

E. 0.

------"mt>~—

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2