Nýir tímar - 09.12.1939, Blaðsíða 1

Nýir tímar - 09.12.1939, Blaðsíða 1
1. TBL. LAUGARDAGINN 9. DES. 1939 1. 4RG. Meiri hluti miðstjórnar Sam- einingarflokks alþýðu Sósíalista- flokksins hefur nú sagt sig úr flokknum. Varð það með þessum hætti: Undirbnningnr verðnr bafinn nm ný pólitisk samtðk. Síðan þýzk-rússneski griðasátt- málinn var gerður í haust og Þjóðverjar hleyptu litlu síðar af stað styrjöld í Norðurálfu; hefur verið ágreiningur uppi um af- stöðu flokksins til viðburðanna er lendis. Þessi ágreiningur hefur mjög hamlað öllu starfi flokksins út á við ,auk þess sem afstaða aðalblaðs flokksins hefur verið með þeim hætti, að vonlaust var að flokkurinn gæti áunnið sér samúð, stuðning eða fylgi utan vébanda sinna. Keynt var þó með ýmsum ráðum að jafna ágrein- inginn innan flokksins, og fullri uppgerð deilumálanna frestað bæði af þvi að ekki var ágreining- ur um innanlandsmál, og margir vonuðust eftir því, að mál mundu fá nýtt viðhorf og sjónarmið mæt- ast, er stundir liðu, enda átti flokksstjórnarfundur að jafna á greininginn. En hvorttveggja varð að engar varanlegar fullnaðar- sættir gátu tekizt og nýir atburð- ir urðu til þess eins að auka á- greining. Að lokum varð um af- ;stöðuna til rússnesk-finnska stríðsins þvílíkur ágreiningur, að okki va.rð undan því komizt, að til átaka kæmi, þar sem öðru hvoru varð að fórna, málum flokksins og sambandinu við fólkið eða fylgi- mennsku við ráðamenn Sovétríkj anna. Á fundi miðstjórnar flokks- ins laugardaginn 2. des. sl. bar formaður flokksins Héðinn Valdi- Blaðlð. Blað þetta gefum við ut til þess eins að gera grein fyriij ursögn okkar úr Sameiningarflokkí alþýðu Sósíalistaflokknuin. Ert þó að ekki sé endanlega gengið frá undirbúningi útgáfu blaðs af okkar hálfu, verður þess ekki langt að bíða, en vitanlega þarf slfkt allmikils und irbúnings. Við höfum óskað þess að fá rétt til að taka upp útgáfú Nýs lands, sem frá var horfið í haust. Þann rétt verððtn við að sækja unciir núverandi srjórn Sósial istaflokksins, sern á það blað og jréttinn til að gefa það út. marsson fram svohljóðandi til- lögu: „Miðstjórn Sameininfearflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins á- lyktar að lýsa samúð flokksins með finnsku þjóðinni og baráttu geirsson, Ársæll Sigurðsson, Guð- brandur Guðmundsson, Sigfús Sig- urhjartarson. Báðum tillögunum var áfrýjað til flokksstjómar og fór atkvæðagreiðsla innan hennar fram sl. sunnudag þannig að að- altillagan var felld með 18 atkv. gegn 14, en 1 greiddi ekki atkvæði og rökstudda dagskráin var sam- þykkt með sömu atkvæðatölu. Engu hefur síðan verið breytt til um útgáfu Þjóðviljans og eng- inn miðstjórnarfundur haldinn, en í fyrradag sagði meirihluti mið- stjórnar sig úr miðstjórn og úr flokknum með eftirfarandi bréfi: hennar fyrir sjálfstæði og sjálfs- ákvörðunarrétti gegn árás þeirri, er gerð hefur verið á hana af nú- verandi stjórnendum Sovétlýðveld- Bréf tncírí bluta míðstjórn- arínnar. anna og herafla þeirra og telur árás þessa um leið vera árás á finnsku verkalýðshreyfinguna og brot á grundvallaratriðum sósíal- istiskra baráttuaðferða. Miðstjórnin felur ritstjórum flokksblaðanna að stjóma þeim samkvæmt þessu og formanni flokksins að birta yfirlýsingu þessa í þeim og útvarpinu nú þeg- I lok umræðna bar Sigfús Sig- urhjartarson fram svofellda til- lögu: „Þar sem augljóst er, að sam- þykkt eða höfnun framkominnar tillögu frá H. V. mundi þýða að flokkui'inn ldofnaði, og þar sem fullkomin eining er ríkjandi innan flokksins um innanlands pólitík telur miðstjórnin rétt að blöð flokksins og flokkurinn út á við gæti lilutleysis um frásagnir um styrjöldina milli Finna og Rússa og tekur fyrir næsta mál á dag- skrá”. Þessi dagskrártillaga var felld imeð 6 atkvæðum gegn 5 í mið- stjórninni en aðaltillagan sam- þykkt með sama atkvæðamun Þessir 6 menn voru Héðinn Valdi- marsson, Arnór Sigurjónsson, Öl- afur Einarsson, Pétur G. Guð- mundsson, Þorlákur Ottesen, Þor- steinn Pétursson, en hinir 5 voru: Brynjólfur Bjarnason, Einar Ol- Þegar gengið vai' til stofnunar Sameiningarflokks alþýðu — Sósí- alistaflokksins, af hálfu vinstri arms Alþýðuflokksins og Komm- únistaflokks íslands, var það gert á grundvelli sameiginlegrar stefnu skrár, sem að mestu var sniðin eft- ir stefnuskrá norska Verkamanna- flokksins, og ætlazt var til, að sam einað gæti alla íslenzka sósíalista í einum sósíalistiskum lýðræðis- flokki, óháðum öllum öðrum en meðlimum sínum, íslenzkri alþýðu Flokkurinn skyldi vera utan al- þjóðasambanda, en hafa vinveitta afstöðu gagnvart alþýðuflokkun um hvarvetna erlendis og þó sérstaklega á Norðurlöndum og starfsemi alþýðunnar innan Sovét- lýðveldanna að skapa þar sósíal- istiskt þjóðfélag. Hinsvegar var það skýrt tekið fram, að hlutverk flokksins og alþýðunnar hér á landi væri að skapa sósíalistiskt þjóðfélag á þeim grundvelli, sem hér væri fyrir hendi, jafnframt því sem hvarvetna í stefnuskránni var lögð rík áherzla á grundvöll lýðræðis, flokkslega, þjóðlega og alþjóðlega og á frelsi og lýðrétt- indi smáþjóðanna, enda eigi ís- lenzka þjóðin sjálfstæði sitt, menn i ingu og öryggi undir því. Þenna grundvöll undir floltks- stofnuninni álitum við nægilega öruggan, ef af alhug og eirlægni væri unnið af allra hálfu og allir ' sósíalistar gætu þá starfað innan I fiokksins. I aðalatriðum hefur það i sýnt sig þann tíma, sem flokkur- inn hefur starfað, að eínmitt þessi grundvöllur hefur reynzt hinn bezti, en er frá honum hefur verið vikið, hefur flokksstarfið reynzt ónýtt eins og nú í haust. f upphafi var að vísu nokkurs jafnvægis gætt milli hinna tveggja arma, sem til samstarfs gengu, um framkvæmdastöður, ritstjóm o. s. frv. innan flokksins, en þó var því fljótt hætt, bæði vegna þess að í samstarfinu kom fram að fjölda- margir menn, sem komu úr Komm únistaflokknum, vildu af fullri ein lægni fylgja grundvelli flokksins með hinum sósíalistunum, sem komu úr Alþýðuflokknum, auk þess mátti búast við, ef á annað borð hæfist matningur um yfirráð flokksins, þá mundi friðnum slitið innan hans, og gæti þá ekki mynd- ast hinn nýi og óháði flokkur, sem Ftefnt var að. Síðari hluta ársins hefur það stöðugt orðið berara að meðal nokkurra aðalforustumanna hins gamla Kommúnistaflokks hefur verið tekin upp algerlega ný stefna og vinnuaðferðir, sem ekki varð vart við í fyrstu, enda þótt fram hafi komið á ýmsan hátt, að fyrir þessum mönnum hafi þegár við stofnun flokksins ekki vakað stofnun nýs og óháðs flokks, held- ur að gamli Kommúnistaflokkur- inn yfirtæki þenna flokk. Manna- skipti í ábyrgðarstöðum hafa öll átt sér stað á eina leið, þannig að ýtt hefur verið út þeim, sem ekki hafa fylgt réttlínupólitík, og er þannig komið, að enginn blaða- maður flokksins getur talizt full- trúi hinna fjölmörgu flokksmanná sem slíkum starfsaðferðum ern andstæðir. Samhliða breytingun- um á utanríkispólitík Sovétlýð- veldanna hafa flokksblöðin tekið á sig þann svip að telja mætti að flokkurinn sem heild, þvert ofan í stefnuskrá sína, fylgdi þessari stefnu í al})jóðamálum, og svo fast hefur þetta mál verið sótt, að harð fylgi miðstjórnnr flokksins hefur þurft við til að fá öðruvísi grein ar inn i blaðið, að undántekinni einni grein frá formanni flokks- ins. Okkur. er Drðið það ljóst, að nokkur hluti forustumanna gamla Kommúnistaflokksins, sem komizt hafa í trúnaðarstöður Sameining- arflokks alþýðu hafa ekki gengið til samstarís í einum flokki af einlægni, heldur hafa þeir notað sér það, að við höfum sýnt þeim fullt traust og aðstöðu innan flokksins til að breyta svip hans frá grundvellinum þanníg, að hanu lagist eftir stefnu og geðþótta nú- verandi valdhafa Sovétríkjanna í hvert sinn, en ekki eftir óskum og þörfum íslenzkrar alþýðu og hafa fórnað hagsmunamálum hennar í innanríkismálunum, fyrir það að verja inálstað hinnar breyttu ut- anríkispólitikur Sovétlýðveldanna. Þetta er ekki einungis gagnstætt grundvelli flokksins og stefnuskrá og óþolandi yfirgangur gagnvart miklum hluta flokksmanna, heldur fyrirbyggir að flokkurinn geti orð- ið sameiningarflokkur íslenzkrar alþýðu. Þess er engin von, að sá flokkur, sem hefur að leiðar- stjöruu utanríkispólitík Sovétlýð- veldanna, breytilega eftir aðstöðu þeirra einna og nú jafnvel stór- veldissinnaða og yfirgangssama geLi sameinað íslenzka alþýðu und- iv merki sínu og fylkt henni sam- einaðri ti! 1 aráttu og enn síður að það yrði henni t.il farsældar. Krafz oksar nú sem fyrr er að forustu- flokvur alþýðunnar sé engum háð- ur öðnim en íslenzkri alþýðu og vinni fyrir hana. Þá eru nú, vegna valdaaðstöðu þessara manna innan flokksins svo að segja daglega brotin mörg stefnuskráratriði hans. 1 stað bar- áttu gegn fasisma og stríði og fyr- ir snmvinnu og samfylkingu allra lýðræðisafla og lýðræðisþjóða, er snúizt til að lýsa skilyrðislausri blessun yfir griðasamningum og jafnvel bandalagi við hið nazist- iska Þýzkaland um gagnkvæma landvinninga, árásarlierferðir tald- ar eðlilegar, ef þær koma frá Sov- étlýðveldunum, og í stað þess að rísa upp gegn kúgunartilraunum stjórnenda Sovétlýðveldanna við hina finnsku þjóð og verklýðs- hreyfingu, er þeirri kúgun fært allt til málsbóta, þrátt fyrir það hættulega fordæmi, sem slíkt gef- ur um ■sjálfstæðismál íslenzku þjóðarinnar og þrátt fyrir alla stefnuskrá flokksins í þessu efni. Við erum þess einnig fullvissir af uriiræðum um þessi mál við ýmsa þá menn, sem eru valdandi þess- Framhald á 4. síðu.

x

Nýir tímar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýir tímar
https://timarit.is/publication/712

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.