12 ÚTVARPSTIÐINDI Hörðui* Bjaraiasoii húsameistari f lytur erindi um skipulagsmál bæja fimmtudaginn 27. okt. Hörður Bjarnason hefir numiö byggingalist við teknisku háskólana í Darmstadt og Dresden. Hann lauk prófi frá Dresdenar- háskóla vorið 1936, en þar hafði hann lagt stund á skipulagsmál bæja o'g sveita sem sérgrein. Nú veitir hann forstöðu teiknistofu skipulagsnefndar bæja, sem sett var á stofn með lagabreytingu frá Alþingi síðastliðið vor. Hörður hefir ritað all mikið um þessi mál í dagblöðin í Reykjavík nú undanfarið, enda, mun hann haí'a lagt sig mjög fram um að kynna sé> þessi mál eins og þau horfa nú við. Gunnlaugur Briem, verkfræðingur: EJYDURVAKPSSTÖÐIN AÐ EIÐUM Þörfin fyrir endurvarpsstöð á Aust- urlandi var knýjandi. Endurvarpsstöðin að Eiðum var opnuð 27. sept., s. 1. Hlutverk hennar er að taka við útvarpinu frá 100 kw. útvarpsstöðinni í Reykjavík betur en unnt er að gera með venjulegum við- tækjum og útvarpa því svo aftur á annari, öldulengd. Þannig er henni ætlað að bæta úr því ófremdará- s'tandi, að Austfirðingar hafa verið að miklu leyti sviftár afnotum ís- lenzka útvarpsins undanfarin ár vegna truflana frá erlendum útvarps- stöðvum. Var mjög títt, að ekki skild- ist eitt einasta orð í kvöldútvarpinu frá Reykjavík á svæðinu milli Djúpa- vogs og Þórshafnar, en þar heyrisc útvarpsstöðin í Reykjavík daufast, og truflanirnar frá rústsnesku stöðinni í Minsk voru þar verstar. Veðurfrétt- ir og slysavarnatilkynningar náðu þá ekki á kvöldin til Austfjarða eða skipa austanlands.; GERÐ SENDISTÖÐVARINNAR. Senditækjum endurvarpsstöðvar- innar er komið fyrir í nýju húsi 300 metra austan við skólann að Eiðum, og er íbúð stöðvairvarðar, Davíðs Árnasonar, í sama húsi. Senditækin eru af allra nýjustu og fullkomnustu gerð,, og samanstanda, í stórum drátt- urn af stýrisendi (lengst til vinstri á myndinni),, afriðli, aðalsendi og mót- ara (hljóðmagnara). Stýrisendirinn er krystallsstýrður, til þess að öldu-