Útvarpstíðindi - 27.09.1943, Blaðsíða 12
Oddný Guðmundsdóttir
skáldkona
Oclduý GuÖmundsdóttir heitir
\ nýjasta skáldkonan okkar, að upp-
runa noröan af Langancsstrond,
en heí'ur þó víöa rataó þegar hér
cr komió sögu.
Foreldrar hennar eru Guðmund-
ur Gunnarsson og Kristín Gísla-
dóttir. Áttu þau þrjú börn og er
þeirra kunnast Gísli Guðmunds-
son alþingismaöur og fyrrv. rit-
stjóri Tímans.
Oddný er gagnfræðingur frá Ak
ureyri frá 1929. Síöan íór hun ut-
an og hefur tvisvar dvalió lang-
dvölum við nám, einkum á NorÖ
urlöndum, en feröast og dvaliö um
stundarsakir í Þýzkalandi, Sviss,
Frakkiandi, Englandi og Rússlandi
Lengst af var hún 1 Svíþjóö og var
m. a. fréttaritari fyrir Ríkisút-
varpið um hríð.
Hún slapp heim rétt fyrir stríö-
iö og hefur stundaö hér ýms störf,
verið starfsstúlka, saumakona, far
kennari, aö því ógleymdu aö vet-
urinn 1941—1942 vann hún hjá
Útvarpstíðindum við afgreiöslu og
blaöamennsku. Á sumrum hefur
hún jafnan veriö í kaupavinnu
fyrir sunnan, austan og noröan, á
kotbýlum og stórbúum.
í frístundum sínum ritar hún
svo skáldsögur og er fyrsta bók
hennar — Svo skal böl bæta —
nýkomin út. Og upp úr henni mun
skáldkonan lesa 10. okt.
Hér verður cnginn ritdómúr,
en þaó eitt skal sagt, aö margir
hafa gerzt rithöfundar af minna
viti og getu.
Erindasafnið.
Framh. af bls. 9.
Hverfisgötu 4 Reykjavík. Ennfrem
veröur *tekiö á móti pöntunum frá
þeim, sem óska að fá sent 1. heftiö
í lausasölu og þaö sent gegn póst-
kröfu og staögreiöslu (sent heim í‘
Reykjavík).
Vegna dýrtíðarinnar er upplagið
mjög takmarkað.
Næstu þrjú ritin eftir nýjáriö
veröa aö öllum líkindum:
Indversk trúarbrögö, eftir scra
Sigurbjörn Einarsson.
4 úrvalserindi eftir þjóðkunna
fyrirlesara.
Annað hefti styrjaldarsögunnar
eftir Jón Magnússon og Axel Thor-
steinsson (annan hvorn eöa báöa).
12
ÚTVTRPSTÍÐINDI