Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						buðu þeir honum svo til Englands og fór

hann í sumarfríinu sínu. Hlustaði hann

þá á enskar hljómsveitir eins og tækifæri

gafst til og heyrði og sá hljómsveit Ted

Heath, sem er sú bezta þar.

Björn hlustar talsvert á plötur og af

amerískum trombónleikurum var hann

hrifnastur af Lou McGarrity en núna er

það Bill Harris, sem er af nýja skólan-

um. Stan Kenton er uppáhalds hljómsveit-

in hans, einnig er hann hrifinn af Elling-

ton, Basie, Goodman og Glenn heitnum

Miller.

Fyrir rúmum tveim árum stofnaði Björn

danshljómsveit, en hann hafði þá í dálít-

inn tíma fengist við að leika jazzmúsik.

Meðlimir hennar voru Haraldur Guðmunds-

son trompet, Gunnar Egils klarinett, Axel

Kristjánsson guitar, Guðmundur bróðir

Björns með trommur og að lokum Árni

Isleifs píanó. Hljómsveitin hefur ekkert

breyzt að undanskildu píanóleikarasætinu,

en þar hefur Björn verið hálf óheppinn

með menn.

Árni var í hljómsveitinni í ár og hætti

svo, þá tók við Carl Billich og svo Árni

Björnsson í smátíma, síðan Kristján Magn-

ússon og er hann nýhættur, en við tók

ungur og efnilegur píanóleikari að nafni

Árni Elvar.

Klarinettleikarinn Gunnar Egils hefur

ekki leikið með hljómsveitinni síðan í ágúst

í fyrra, er hann fór til tónlistanáms í

U.S.A. Hans er von bráðlega og mun hann

Æft undir

berum himni

taka sitt gamla sæti í hljómsveitinni. Þeir

félagar byrjuðu fyrst að leika í Lista-

mannaskálanum, en fóru þaðan í Breið-

firðingabúð, þar sem þeir eru enn. Fyrst

framan af lögðu þeir mesta áherzlu á að

leika léttan Dixieland stíl, en hafa nú

mikið til lagt hann niður og leika nú mest-

megnis útsetta músik, þar sem meira kem-

ur fram geta hljómsveitarinnar í heild

heldur en einstakra sólóista. „Þetta verður

samt aldrei verulega gott", segir Björn,

„fyrr en við getum bætt við kontrabassa

og tenór-saxafón, en því miður er skemmt-

analifið hér í bæ ekki nógu almennt til

þess að stórar hljómsveitir beri sig, en von-

andi er að úr þessu rætist á næstu árum,

því alltaf er jazzáhuginn að aukast hjá

fólki".

Björn hefur gert sér far um að taka til

greina skoðanir hinna meðlima hljómsveit-

arinnar, um hitt og þetta henni viðvíkj-

andi, jafnt sem sínar eigin og hefur þar

með lagt grundvöllinn að góðu samstarfi

innan hljómsveitarinnar, sem er ein af

höfuð ástæðunum fyrir hversu

góð hún er.

Síðasta árið hefur Björn sung-

ið með hljómsveitinni og hefur

því verið tekið alveg sérstak-

lega vel, og hefur hann þar eins

og í hljómsveitarstjórastöðunni

unnið hjörtu manna með hinni

látlausu framkomu sinni og

háttprýði. — H. S.

Sundmaðurlnn Björn

D       /ýazzblaoió

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20