Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 10

Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 10
„Uppáhalds plöturnar mínar” í þessu blaði verða birt nöfn tólf uppáhalds platna tveggja trommuleikara. Sá ameríski er hinn gamalkunni New Orleans trommari Zutty Singleton, en sá íslenzki er Guömundur R. Ein- arsson, sem við öll þekkjum. í næsta blaði verða fyrir valinu tenór-saxafónleikararnir Eddie Miller, sem frægur varð fyrir leik sinn í hljómsveit Bob Crosby og Ólafur Pétursson, er leikur með hljómsveit Aage Lorange. Confessin’, Louis Armstrong. How long blues (píanó sóló), Count Basie. Embraceable you, Bobby Hackett. Blue serge, Duke Ellington. Blue skies, Mel Powell. From Monday on (Beiderbecke), Whiteman. Chimes blues, Joe Oliver. Darktown strutters ball, Fats Waller. Turtle twist, Jelly-Roll Morton. Miss Hannah, McKinney’s Cotton Pickers. At the Christmas ball, Bessie Smith. Babalu, Miguelito Valdes. Zutty fæddist í sjálfri New Orleans fyrir 50 árum. Hann byrjaði að leika á trommur mjög ungur og kveðst ætla að halda áfram þar til yfir líkur. Hann hefur leikið með mörgum þekktum hljómsveitum svo sem Jimmie Noone, Louis Armstrong og Fats Waller. Hann lék með Armstrong inn á hina heimsfrægu plötu „West End Blues“. Zutty er afar góður Dixieland trommari og eru sólóar hans þær melódískustu, sem maður heyrir, ef hægt er að tala um meló- díska sóló á trommur. Hann leikur ennfremur afar góðan rhythma og er hið stöðuga tempó hans víð- frægt. Guðmundur R. Einarsson. Rose room (Catlett trommur, Bigard klar.) leikið á V-disc. Tiger Rag, Benny Goodman sextet. Limehouse Blues, Benny Goodman tríó. Rosetta, Teddy Wilson. China boy, Muggsy Spanier. Mop Mop, Art Tatum, „all-star band“. Confessin’, Louis Armstrong. Bugle call rag, (C. Shavers, T. Wilson), leikið á V-disc. Stompin’ at the Savoy, Teddy Wilson sextet. Bach goes to town, Benny Goodman orch. Red Top, Woody Herman. Goin out the back way, Duke EUington. „Mummi“ er 22 ára og hefur leikið á trommur í þrjú ár. Hann byrjaði í hljóm- sveit Björns bróður síns, þar sem hann er enn. Honum lætur lang bezt að leika rhythma, en samt sem áður eru sólóar hans hver annari betri, sem mikið er að þakka því að Guðmundur er óvenjulega músikkalsk- ur. Það er vart til það hljóðfæri, sem hann ekki nær lagi á og er hann t. d. núna að læra á klarinett. Hann á stórt plötusafn, sem hann hlustar mikið á og þreytist hann aldrei á að hlusta á Sid Catlett leika á trommurnar. 10 flazzlUií

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.