Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						hljómsveit Jimmy Dorsey, er Johnny Frigo

hætti. Hinn nítján ára trommuleikari Karle

Kiffe hefur til skamms tíma verið aðal-

stjarna hljómsveitarinnar. Áður en hann

fór til Jimmy var hann með eigin ungl-

mgahljómsveit í Hollywood og kom hún

mikið fram í kvikmyndum. Karle er ný-

hættur hjá Dorsey og tók Charley Perry

við.

Trompetleikarinn Louis Armstrong og

trombónleikarinn Jack Teagarden eru sam-

an með smáhljómsveit, sem mikið er rætt

um þessa dagana í Bandaríkjunum, enda

er hún fram úr hófi góð. í henni eru auk

framangreindra Barney Bigard klarinett,

Sid Catlett trommur, Dick Carey píanó og

Morty Corb bassi.

Hitt og þetta. Count Basie átti 40 ára

afmæli og 12 ára hljómsveitarstjóra af-

, raæli rétt fyrir áramótin. ¦— Larry Clinton,

sem stjórnaði einni af þekktari swing-

hljómsveitum fyrir 1940, hefur nýlega

stofnað hljómsveit. Trommuleikarinn Alvin

Stoller, sem þekktur varð fyrir leik sinn hjá

Tommy Dorsey er hjá honum. — Preddie

Webster trompetleikari og útsetjari (hann

lék hjá Earl Hines og Jimmy Lunceford)

dó í haust. — Hljómsveitarstjórinn og

trompetleikarinn Erskine Hawkins var ekki

alls fyrir löngu sæmdur nafnbótinni „Doct-

or of music" við Alabama State College. —

„Adam blew his hat", er einhver nýjasta

platan með Lionel Hampton hljómsveítinni

og einhver sú bezta, sem þeir hafa leikið

inn á í langan tíma. — Um leið og altó-

saxafón-leikarinn Johnny Bothwell skyldi

við konuna, leisti hann upp hljómsveit sína.

Vera má að liann byrji aftur og þá með

smáhljómsveit. — „The Quintet Of Hot

Club Of Frrince" er nýlega kominn saman

eftir að haf.i legið niðri í nokkur ár. Hann

er langt f rá því að vera eins góður og hann

var, sem mikið er að kenna því að fiðluleik-

arinn Stephan Grappelly er í afturför og

guitarleikarinn Django Reinhardt gerir ekki

betur en að standa í stað. — 1 janúar var

haldinn konsert í New York til minningar

um blues-söngkonuna frægu Bessie Smith,

en þá voru tíu ár liðin frá dauða hennar.

Þeir, sem léku voru jazzleikarar, sem leikið

höfðu inn á plötur með söngkonunni. —

Woody Herman er með einn negra í hinni

nýju hljómsveit sinni. Það er trompetleik-

arinn Ernie Royal og fer hann upp fyrir öll

takmörk á hljóðfærið. — Dizzy Gillespie er

með hljómsveit sína í hljómleikaför um

Evrópu. Munu þeir m. a. leika 1 Svíþjóð

og Danmörku. — Chubby Jackson fór með

„all-star" hljómsvéit í hljómleikaför til

Svíþjóðar og jafnvel fleiri Evrópulanda

rétt fyrir jól. — Söngkonan og kvikmynda-

leikkonan Lena Horne hélt hljómleika fyrir

skömmu í London.

Innlendar fréttir. Hljómsveit Björns R.

Einarssonar lék inn á nokkrar plötur um

áramótin. Þær heppnuðust prýðilega og

voru leiknar í danslögum Ríkisútvarpsins

á gamlaárskvöld og nýársdag. Lagið Chi

baba, sem Björn söng inn á eina af þess-

um plötum fór sem eldur um sinu um bæ-

inn næstu daga á eftir, enda söng Björn

það snilldarlega. — Guitarleikarinn Trausti

Th. Óskarsson er nú hættur með K.K.-

sextettinum. I stað hans kom Gunnar Orm-

slev á tenór-saxafón. — Kristján Magnúss.

hætti að leika hjá Birni R. rétt fyrir ára-

mót og tók Árni Elvar við. Hann hefur

lítið leikið opinberlega á píanó, en fékkst

samt eitthvað við að leika á klarinett á

skóladansleikjum og víðar. — Gunnar

Egils, sem verið hefur við nám í Californíu

síðan í ágúst í fyrra, kemur til landsins

innan skamms, og mun hann aftur fara

að leika með hljómsveit Bjöms. Blaðið mun

að sjálfsögðu hafa tal af honum er hann

kemur og spyrja hann „jazzfrétta" frá

U.S.A. — Jam-session hafa engar verið

haldnar undanfarið, sem ef til vill stafar

af því að hljóðfæraleikarar hafa haft afar

mikið að gera síðustu vikurnar, en von-

andi mun þetta komast í sitt gamla horf,

þannig að það verði hægt að reikna með

einni session í viku, og þá með almennri

þátttöku úr öllum hljómsveitum. — S. G.

(fazzblaðlo       lv3

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20