Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						Leonard Feather:

Upprennandi  Jazz-stjörnur

•

J. C. HEARD

Fáar smáhljómsveitir hafa möguleika á

að ná mikilli frægð, en á fyrsta hljóm-

sveitarstjóra ári sínu sannaði J. C. Heard

að hljómsveit hans er undantekning frá

þessari reglu. Eins og hljómsveitir þeirra

John Kirby, Lous Jordan og Eddie Hey-

wood hefur J. C. Heard sex-

tettinn sameinað nákvæmni

í verki, sérstæðar útsetningar i

og lagt áherzlu á að skemmta |

hlustendum og leika samt úr-

vals jazz. Með þessu er hljóm- i

sveitin jafnt virt af almenn-

ingi    sem   jazzgagnrýnendum.

J. C. Heard fæddist fyrir 31

ári í borginni Detroit í U.S.A.

Á skólaárum sínum þar fékk

hann áhuga fyrir músik, en áður en hann

fór að læra lék hann sem amatör tromm-

ari í nokkur ár. Svo lék hann með hinum

og þessum lítt þekktum hljómsveitum fram

til ársins 1938, en þá fékk hann fyrsta

verulega tækifærið er hann kom til New

York.

Teddy Wilson, sem þa var að hætta hjá

Benny Goodman stofnaði eigin hljómsveit

og réði J. C. til sín. Er Wilson hljómsveit-

in leystist upp lék J. C. í dálítinn tíma

hjá Ben Webster og svo Coleman Hawkins,

en 1941 stofnaði Wilson smáhljómsveit, sem

lék á Cafe Society og var J. C. þá aftur

með honum. Eftir að hafa verið þarna í

15 mánuði tók J. C. sæti Cozy Cole í hljóm-

sveit Cab Calloway. Hann lék með Cab í

þrjú ár og hefur þú ef til vill tekið eftir

honum í kvikmyndum þeim, sem hljóm-

sveitin lék í á þessum árum. Þegar hann

fór frá Cab Calloway réðist hann til síns

gamla félaga úr Teddy Wilson hljómsveit-

inni, Benny Morton en hann var með eigin

sextett  á   Cafe   Society   Downtown.

Er Morton fór þaðan var J. C. beðinn

um að stofna hljómsveit til að leika í

klúbbnum. Þeir byrjuðu 12. febrúar 1945,

stuttu eftir að J. C. var kjör-

inn „new-star" trommari árs-

ins af jazzsérfræðingum tíma-

ritsins Esquire.

Meðan hljómsveitin lék á

Cafe Society lék Heard mikið

inn á plötur, engu minna með

sinni hljómsveit en öðrum, svo

sem Slam Stewart og Dizze

Gillespie. Hljómsveit hans lék

inn á plötur með hinni frægu

söngkonu, Ethel Waters, svo

og Etta Jones. Þá var hljóðfæraskipun

þessi: Heard á trommur, George Treadwell

trompet, Budd Johnson tenór-sax, Jimmy

Jones píanó, Dick Harris trombón og bassa-

leikarinn Al McKibbon, sem er mágur J. C.

Síðan hafa þeir Joe Newman og George

Nicholas tekið við sætum þeirra Treadwell

og Jóhnson.

J. C. Heard, sem eitt sinn vann fyrir

sér sem steppdansari hefur sýnt að hann

er engu lakari hljómsveitarstj. en trommu-

leikari, og hefur hann gerst ennþá víðtæk-

ari með því að syngja með hljómsveitinni

og gefst það vel.

Það þarf meir en meðal mann til að

stjórna hljómsveit og vera sjálfur tromm-

ari hennar, svo að ekki verði úr því „one

man show".

Það er enginn vafi á því að J. C. Heard

er einn af þeim fáu útvöldu og blasir fram-

tíðin við honum og hljómsveitinni.

14       (jazzblaðid

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20