Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						S VA R G R E 1	N

/70«   irliili	

í nóvemberhefti tímaritsins Jazz víkur

Svavar Gests nokkrum orðum að greinar-

korni sem ég ritaði í Landnemann í haust,

en þar fullyrti ég, að negrar léku jazz

betur en hvítir menn. Sagði ég einnig í

sömu grein að margir hvítir Bandaríkja-

menn hefðu að vísu lært, af negrum, að

leika ágætan jazz, betri en hvítir menn af

öðrum þjóðum, vegna náinna kynna af

negrum og músik þeirra.

í grein sinni segist S.G. álíta að jazz-

inn sé engum sérstökum í blóð borinn,

heldur fari það eftir lifnaðarháttum og

öðrum aðstæðum hvað menn taka sér fyrir

hendur er þeir komast á legg. Eg viður-

kenni að flestir heilbrigðir menn gætu með

nokkurnveginn áþekkum árangri lagt fyrir

sig skurðgröft, steypuvinnu, vélritun, mat-

reiðslu, lögfræði og læknisstörf, en um list

er öðru máli að gegna, þar koma til greina

sérgáfur, sem mönnum eru í blóð bornar.

Sumum hvítum mönnum er það gefið að

geta leikið góðan jazz, en miklu fleiri eru

þó hinir sem hafa reynt það árangurslaust

árum saman, og þurfum við ekki að líta

lengi í kringum okkur til að finna þá.

Aftur á móti hef ég aldrei heyrt getið um

negra, sem fengizt hafi lengi við jazzleik

án árangurs.

S. G. segist ekki álíta að hvítir menn

leiki jazz betur en negrar, heldur séu þeir

svipaðir að gæðum, og máli sínu til stuðn-

ings bendir hann á Esquire-kosningarnar,

þar  voru   fimm  kosnir  af  hvorum  lit.  í

Metronome og Downbeat sigra hvítir aftur

á móti glæsilega. S. G. viðurkennir að þetta

sanni ekki að hvítir leiki jazzinn betur og

er ég á sama máli. Það eru ekki mörg ár

síðan Guy Lombardo var meðal hinni hæstu

í kosningum Downbeats, Ellington var þá

nr. 33.

Aftur á móti má benda á að Goodman

hefur oftast látið Henderson, M. Lou

Williams, Jimmy Mundy og aðra negra

raddsetja fyrir hljómsveit sína. Ef Good-

man væri spurður: Hversvegna? Mundi

hann vafalaust svara: Þeir eru betri.

Tommy Dorsey lætur Sy Oliver raddsetja,

Juan Tizol skrifar fyrir Harry James o.

s. frv. Hvítu raddsetjararnir hafa yfir-

leitt lært allt sitt af negrum, það hafa

hljóðfæraleikararnir einnig gert, og ég veit

að S. G. viðurkennir það að athuguðu máli.

Um hitt má svo endalaust deila hvor leiki

betur jazz, Lawrence Brown eða Bill Harr-

is, Pettiford eða Jackson, Hawkins eða

Venturo, en hefði ég verið dómari hjá

Esquire þá hefðu mínir menn allir verið

svartir.

Ég vil taka það fram að ég hef aldrei

komið til Bandaríkjanna og þekki jazzinn

því ekki  nema af plötum.

Svo vildi ég biðja S. G. að hugleiða

hvei'nig jazzinn væri í dag, ef negrarnir

hefðu aldrei verið fluttir til Bandaríkj-

anna.

Jón Múli.

S. G. mun svara í næsta blaði.

Aazzblaúið        llD

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20