Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 19

Jazzblaðið - 01.02.1948, Blaðsíða 19
arinn hans setti þeim fyrir til næsta dags að læra fyrsta erindið úr „Barnagaman“, las hann allt kvæðið fjórum eða fimm sinn- um og var þá búinn að læra það. Daginn eftir gekk allt vel fyrst í stað. Hann stóð upp, þegar röðin kom að honum, og fór laukrétt með fyrsta erindið, en gleymdi að láta staðar numið við það. Annað erindið bunaði út úr honum, og hann var að sækja í sig veðrið til að byrja á því þriðja, þegar kennarinn sagði: „Seztu! Þú hlýtur að hafa lært þetta í einhverjum öðrum skóla“. Þannig gekk það fyrir sig gegnum allan barnaskólann. Honum virtist vera fyrir- munað að geta nokkurntíma fótað sig. Hann var óharðnaður en var jafnan hinn prúðasti. Þó gat hann aldrei komið sér á strik, og það fór síversnandi. Samt náði hann prófi. Allir náðu prófi, hvernig sem allt gekk. Þetta var svo sem enginn fyrir- myndar skóli. Mexíkönsku krakkarnir gátu ekki lært enskuna, Negrarnir léku sér of mikið, og þeir hvítu virtust ekki vera af nógu góðu bergi brotnir. En þeir japönsku, þeir japönsku vox-u gull að gáfum, ljón- skarpir. Þeir fengu allir ágætiseinkunn á prófi. Og frænka Rikka snuðaði hann um hvítar síðbuxur fyrir vikið. 1 gagnfræðaskólanum hefði það átt að skána, en það var öði’u að heilsa. Fyrsta árið í gagnfræðaskóla varð sú mei'kilega bi’eyting á, frá síðasta ári í barnaskóla, að Rikki hætti að sitja heima við bóka- lestur, en fór að hengilmænast kringum Allrasálnakirkju, við Washingtongötu, i-étt fyrir neðan Miðstræti, snuðra við pianóið. Þetta byi'jaði fyi-sta daginn hans í gagn- fræðaskólanum. Honum gekk óskaplega illa að láta skrásetja sig. Hann hékk nærri allan daginn á ganginum fyrir framan skrifstofu skólastjórans, og loks þegar röð- in var kominn að honum, vai’ð hann ger- samlega í’uglaður. Hann hlustaði á alla hroignaþuluna, — aðalfög, aukafög, skyldu- fög, leikfimi, handavinna — með stökustu þolinmæði, en skildi ekki neitt í neinu. En loks komst skólastjói'inn, eða kannski það hafi verið fulltrúinn, loks komst hann að höfuðatriðinu. Og þannig var í pottinn búið, að nemandinn átti að taka um það ákvörðun á stundinni, hvaða veg hann ætlaði sér að ganga í lífinu. Hann gat, til dæmis, valið sér verzlunarnámskeið — vélritun, hraðritun, bókfærslu og svo fram- vegis — og gefið sig síðan að verzlun. JOHNNY HODGES Framh. af bls. 9. ekki til nógu stei’k orð yfir tjlfinningar þíixai'". „Drengilega mælt“, sagði ég. Johnny kveikti sér i vindlingi og hélt áfi-am. „Segja má, að ég sé allra heppnasti náungi, ég lifi góðu lífi, er vel giftur, á þrjú myndar- leg böi-n, og að lokum að hafa fengið að starfa með Duke Ellington". Eftir samtalið fór ég aftur fi'am í sal til að hlusta á hljómsveitina. Það má vel vera að ég hafi ímyndað mér það, en mér fannst sem ég skildi tónlist mannsins með altó-saxafóninn, betur eftir að ég hafði talað við hann. Hann er án efa öllum öðr- um fremri í list sinni, og leikur fram úr hófi fágað, en er það ekki einmitt það sem að hann er sjálfur? (Lausl. þýtt). Hann gat líka valið sér einhverja iðngrein — bifvélavii-kjun, útvarpsfi'æði, trésmíði, eða annað af því tagi (nú er haldið eitt námsskeið við þennan skóla, sem þeir kalla fegrunarfræði, en það var nú ekki komið þá. Það var ekki einu sinni kennd hár- liðun við þennan skóla í þá daga). Eða -—• ef nemandinn ætlaði sér embætti — gat hann farið í læknisfræði, lögfi-æði, guð- fræði, kennslu, eða kannski væri bezt að byi’ja á aimennum undirbúningsfræðum. Og Rikki var ákveðinn að sýna af sér mikla rögg, og það sem hann sagði, kom reyndar eins og þruma úr heiðskíru lofti: „Ég ætla að velja mér það“. „Hvað?“ spurði fulltrúinn. „Almenna undirbúningsnámskeiðið", sagði Rikki með mestu spekt, og maður- inn skrifaði: Eðvarð Ríkharður Marteins, almenn undirbúningsfræði. „Þá er því lokið, Eðvarð. Þú átt að mæta í stofu nr. 200 á annarri hæð klukkan hálf níu í fyrramálið". Frh. $a:zLU;í 19

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.