Jazzblaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 12

Jazzblaðið - 01.03.1948, Blaðsíða 12
Svavar Gests: FRÉTTIR o9 FLEIRA INNLENT. Útvarpið. Um leið og Jazzþætti Ríkisút- varpsins fer aftur (þriðju)dag frá (þriðju) degi fer danslagaþátt'unum fram. Fram- farirnar liggja aðallega í því, að nú fá landsmenn að heyra í sínum eigin hljóm- sveitum, annað hvort útvarpað beint frá samkomustöðunum eða þá úr útvarpssal, og svo í þriðja lagi af plötum. K.K.-sex- tettinn lék átta lög inn á plötur fyrir út- varpið í miðjum febrúar og heppnuðust þær vel. Hljómsveit Björns R. Einarssonar hefur leikið inn á plötur fyrir útvarpið síðan. Haukur Morthens söng fáein lög, einnig inn á plötur og lék Baldur Kristj- ánsson undir. Haukur syngur prýðis vel, en meiri heildarsvipur hefði þó orðið á þessu, ef hann hefði getað haft fullkomn- ari rhythma með. Þ. e. a. s. auk píanósins, að minnsta kosti bassa og trommur, en það mætti segja mér að slíkt hafi verið „of kostnaðarsamt" fyrir sjálft Ríkisút- varpið. Bíó-fréttir. Framvegis verður í dálkum þessum birt yfirlit yfir músik-myndir þær, sem kvikmyndahúsin í Rvk. munu sýna í mánuði þeim, sem blaðið kemur út í. I.ítið sem ekkert hefur borizt til landsins und- anfarið af kvikmyndum, svo það er ekki úr miklu að spila. Austurbxjarbíó mun ekki sýna neina músikmynd í þessum mánuði, en aftur á móti hafa þeir þrjár aukamyndir, sem þeir munu sýna með öðrum myndum. I mynd- um þessum koma fram hljómsveitir þeirra Johnny Long, Larry Clinton og svo Hawaii- hljómsveit Ditík Mclntire. Gamla bíó mun sýna mynd er nefnist „Till the clouds roll by“. Hún er byggð á ævisögu hins vinsæla tónskálds Jerome Kern. Hann samdi eins og kunnugt er „Ol’ man river“, „Long ago and far away“, og mörg fleiri þekkt lög og eru 23 þeirra leik- in og sungin í myndinni. Söngvarar, sem koma fram í myndinni eru: Frank Sinatra, Tony Martin, Lena Horne, Virginia O’Bryan og Kathryn Gray- son. Aðra mynd mun Gamla bíó sýna og nefnist hún „Easy to wed“. Þetta er dans- og söngvamynd með þeim Esther Williams og Van Johnson í aðalhlutverkum. í mynd- inni eru tíu lög, leikin af Etel Smith og sungin af Carlos Ramires og fleirum. Nýja bíó hefur þrjár myndir á prjón- unum, sem þeir vonast til að geta sýnt í þessum mánuði. Sú fyrsta heitir „Cuban Pete“, sem er dans- og söngvamynd. í myndinni koma fram: King systur, Ethel Smith og rhumba hljómsveit Desi Arnaz. Um tíu lög eru í myndinni. Næsta mynd heitir „Swing out sister", sem er skemmti- mynd með þeim Franches Raeburn (hún leikur söngkonu) og Rod Cameron (hann leikur klassiskan músikant, sem þráir að leika jazz) í aðalhlutverkum. Fjöldi laga er í myndinni, svo sem „Only on dreams", sem byggt er á „Keisara-valsi" Jóhanns

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.