Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						Hallur Símonarson:

ÍSLENZKIR   HLJOÐFÆRALEIKARAR

Sveinn Ölafsson

Maðurinn, sem ég ætla að kynna fyrir

ykkur núna, á einna mestan þátt í því að

við Islendingar erum orðnir óháðir erlend-

um hljóðfæraleikurum í dansmúsik okkar,

því hann sannaði með afburða leik sínum,

RO íslendingar geta lært að leika á hljóð-

færi eins vel og útlendingar og breytti þar

með því almenningsáliti, sem ríkti hér fyrir

tíu til fimmtán  árum.

Sveinn Ólafsson er vestfirðingur að ætt,

fæddur á Bíldudal 6. nóvember 1913. Hann

komst, eins og flestir aðrir drengir, sem

alast upp í sjávarþorpum, fljótt í kynni

við sjóinn því hann byrjaði kornungur að

fara til sjós á sumrin og var m. a. þrjú

sumur á skútu. Sjórinn varð hans líf og

yndi og hann var ekki hár í loftinu, þegar

það var orðin „óhagganleg" ákvörðun hans

að verða sjómaður, og þá náttúrlega skip-

stjóri. En aðstæðurnar breyttust þegar

hann fluttist til Reykjavíkur 192G, og minn-

ingin um sjóferðirnar smá fyrnist fyrir

þeim áhrifum, sem hann varð fyrir þegar

hann fékk áhuga fyrir tónlistinni og byrj-

aði að læra að leika á hljóðfæri, enda kom

þá fljótt í ljós hin mikla tónlistargáfa, er

hann hafði hlotið í vöggugjóf. Hann eign-

aðist fiðlu skömmu eftir að hann kom til

Reykjavíkur, mesta kostagrip, er kostaði

19 krónur og fiðluboginn kr. 7,50. Fyrsti

kennarinn hans var Þórarinn Guðmunds-

son, hinn góðkunni fiðluleikari og hljóm-

sveitarstjóri. En árið 1931, þegar Sveinn

var 18 ára, innritaðist hann í tónlistaskól-

ann og lauk þar námi í fiðluleik 1935, síð-

ar gerðist hann svo kennari við  skólann.

Árið 1934 eignaðist Sveinn saxafón og

byrjaði strax að læra á hann hjá Jack

Quinet, sem var þá hljómsveitarstjóri á

Hótel Borg.

Árið 1933 byrjaði Sveinn að leika dans-

músik opinberlega og þá fyrst á Hótel

Birninum í Hafnarfirði, ásamt Árna

Björnssyni (fiðla og píanó). Árið eftir

ræðst hann til Aage Lorange í Iðnó, og

var með honum í tvö ár, en hljóðfæraskip-

un hljómsveitarinnar var þessi: Aage

píanó, Sveinn tenór-sax, Vilhjálmur Guð-

jónsson altó-sax, Bjarni Guðjónsson banjó,

og danskur maður að nafni Kragh á tromm-

ur. 1936 byrjaði hann svo að leika á Hótel

Borg, ásamt Bjarna Böðvarssyni (kontra-

bassa) og fimm Englendingum, en hljóm-

sveitarstjórinn hét Rosburry. Á eftirmið-

dögum lék hann létta klassiska músik með

f jórum Ungverjum, spiluðu þeir í ungversk-

um þjóðbúningi, sem Sveinn kunni afar illa

við sig í. Á árunum 1937 og 38 lék hann

um átta niánaða skeið í hljómsveit Carls

Billich að Hótel ísland, annar íslendingur

lék í hljómsveitinni, Þorvaldur Steingríms-

son, hinir voru Þjóðvei'jar.

Um vorið 1938 brá Sveinn sér til Dan-

merkur og verður síðar vikið að því. Þeg-

ar hann kom aftur, fór hann að leika á

Hótel Borg, og hefur hann leikið þar síðan.

í Borgarhljómsveitinni 1939 voru eftirtald-

ir menn. Hljómsveitarstjórinn Jack Quinet,

Sveinn   Ólafsson,   Vilhjálmur   Guðjónsson,

JazzUadiA        5

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20