Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						Þórir Jónsson á altó-sax og fiðhi, Jóhannes

Eggertsson trommur, Páll Dalman á tromp-

et. Páll var Vestur-íslendingur.

Af framanskráðu má sjá að útlend-

ingar voru í miklum meirihluta meðal

hljóðfæraleikara  hér  á  árunum   1930—40.

Stafaði það mikið af því, að almenn-

ingsálitið hér var þannig að flestir héldu

að íslendingar gætu ekki lært að leika á

hljóðfæri. En sem betur fór tókst þeim ís-

lenzku hljóðfæraleikurum, sem störfuðu á

þessum árum, að sannfæra almenning um

að þeir gátu lært að leika á hljóðfæri eins

vel og útlendingar, enda hefur veldi þeirra,

útlendinganna, stöðugt farið minnkandi hér,

svo að nú má orðið telja þá, sem leika

hér dansmúsik, á fingrum annarrar hand-

ar. „En samt sem áður", segir Sveinn,

„verða íslenzkir hljóðfæraleikarar að standa

vel á verði gagnvart erlendum hljóðfæra-

leikurum, því sjaldan eða aldrei hafa jafn

margii- sóttst eftir að komast hingað og

núna".

Árið 1938 fór Sveinn ásamt Vilhjálmi

Guðjónssyni til Danmerkur. Höfðu þeir

aurað saman nokkra fjárupphæð og ákváðu

þeir að betra væri að skoða sig um í Dan-

mörku, heldur en að láta híruna liggja

hér óhreifða í banka. Dvöldust þeir fyrst

í Kaupmannahöfn í 2—3 mánuði og sáu allt

það markverðasta þar. En þá fór pyngjan

að léttast nokkuð mikið, svo að þeir útveg-

uðu sér vinnu. Réðu þeir sig til Anker

Paulsen, hljómsveitarstjóra og fyrrverandi

Danmerkurmeistara í boxi, í Randes á Jót-

landi.

Spiluðu þeir í rúma tvo mánuði á bað-

ströndinni í Randes, en héldu að því búnu

heim til íslands. Árið 1946 fór Sveinn aftur

til Danmerkur til að fullkomna sig á viola,

og dvaldist þar í átta mánuði. Kennari hans

var Gunnar Fredriksen, þekktasti danski

violistinn.

Sveinn hefur leikið klassiska músik jafn-

hliða dansmúsikinni og hefur það sæti, sem

hann hefur skipað þar, jafnan þótt vel skip-

að. Hann hefur leikið í útvarpshljómsveit-

inni í átta ár. í hinni nýju Symfóníuhljóm-

;;§^i

sveit Reykjavíkur leikur Sveinn 1. viola,

enda er hann án efa bezti íslenzki violistinn.

Er ég spurði Svein um álit hans á ís-

lenzkum jazz-hljóðfæraleikurum, sagði

hann: „Að mínu áliti eru íslenzkir jazz-

hljóðfæraleikarar alveg sambærilegir við

hljóðfæraleikara á Norðurlöndum. Liggur

það mest í því, að íslendingar hafa mikið

næmi fyrir rhythma, t. d. eigum við marga

mjög góða trommuleikara. Aftur á móti á

hin erfiðu hljóðfæri, þ. e. a. s. þau hljóð-

færi, sem stöðugt þarf að æfa sig á, skortir

okkur nokkuð teknik, sem stafar af því, að

við æfum ekki nóg. Mér finnst íslenzkir

hljóðfæraleikarar hafa mikinn skilning á

jazz og tóngáfu skortir þá ekki, aðeins

æfingu".

Sveinn hefur mjög gaman af að hlusta

á plötur. Af tenórsaxafónleikurum finnst

honum þeir Coleman Hawkins, Chu Berry

og Ben Webster beztir og Johnny Hodges

beztur af altó-sax leikurunum.

Sveinn er mjög vinsæll og nýtur mikils

álits meðal hljóðfæraleikara. Sýnir það bezt

hve mikið traust þeir bera til hans, er hon-

um var falið að koma upp og stjórna hinni

stóru hljómsveit F. í. H., er kom í fyrsta

sinn, og vonandi ekki í það síðasta, fram

fyrir nokkrum vikum hér í Reykjavík við

ágætar undirtektir áheyrenda.


Ö       /jaxzbtaBið

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20