Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						52. strœti

cftir Wilder Hobson


Miðstöð swingáhugamanna í New York

er í Fimmtugasta og öðru stræti, laust

vestan við Pimmtu tröð, og grendinni um-

hverfis. í þessu virðulega íbúðahverfi brún-

steinhúsa norður af Rockefeller City úði

og grúði af leynivínsölum á bannárunum.

Síðan féllu mörg þessara húsakynna í

hendur .i'azzmanna og fengu þá skrautleg

skilti utan á sig, en inni ríkti slæmt and-

rúmsloft. Þarna gerðist það fyrst í sög-

unni, að fjöldi fólks gerðist fús til að

Idusta sitjandi á fjörugustu jazzmúsíkina,

án þess að heimta dansgólf. I Bandaríkj-

unum höfðu jazzhljómsveitir þá leikið á

mannamótum í tuttugu ár, og allt í einu

tók sig til talsverður hluti borgarbúa og

fékk sér sæti til þess eins að hlusta á þær.

Vitaskuld með leiðveizlu  Bakkusar.

Ástæðan fyrir því, að allt þetta atvik-

aðist við Vestur-Fimmtugasta og annað

stræti var líklega Onyxinn. A bannárunum

var Onyxinn ósköp hversdagsleg leyniknæpa

á annari hæð, sem var að því einu frá-

brugðin öðrum slíkum greiðastöðum, að

viðskiptavinirnir voru aðallega hl.jómlistar-

menn úr danshúsum og útvarpsstöðvum, og

var þeim ætlað að hafa þar skemmtun

góða. Það var gengið inn í kjallara og

síðan stiga upp á aðra hæð að málaðri

og kámugri silfurdropóttri hurð, með hinu

venjulega varðlúugati. Þar var skuggsýnn

gangur inni og tvö drykkjuherbergi, og var

í innra herberginu drykkjarlangborð, kúlu-

spilsborð, hrörlegt píanó, fáein smáborð og

nokkrir   körfustólar.    Margir   hljómlistar-

menn notuðu staðinn eins og klúbb, höfðu

afnot af símanum til að hringja í allav

áttir og lögðu þar af sér hljóðfærin sín,

en ekkert markvert bar til tíðinda fyrr en

að áliðnum degi og heldur engin ósköp

eftir það. Ég efast um, að það hafi verið

meira en tíu smáborð í þessum salarkynn-

um, og ég er viss um, að ég sá aldrei fleira

en tuttugu og fimm manns á staðnum sam-

tímis.

Um fimmleytið síðdegis fór Joe Sullivan

eða Charley Born eða Art Tatum að leika

á píanóið, en það var alltaf eins og af

slíkri hendingu tilkomið, að þeir sem ekki

vissu, að þessir menn voru ráðnir af hús-

stjóininni, hefðu ætlað, að þeir hefðu bara

rekizt inn og fengið sér tylling. Þetta var

kórónað með því, að hver gestanna gat

tekið lagið, ef hann óskaði þess. Red Mc

Kenzie söng Four or five times með Sulli-

van, og „Del" Staigers tók fram trompet-

inn sinn og sýndi það svart á hvítu, hvern-

ig hægt væri að leika á þrjár nótur á hann

samtímis. Joe Sullivan ærslaðist þarna og

lék dægurlög og fjöldann allan af blues

á borð við Gin Mill plötuna. í Tin Pan

Alley má ef til vill heyra annað eins og

þetta, að auðvitað sé Gin Mill Blues „tón-

verk" og „við eigum útgáfuréttinn". En

platan er nákvæmlega eins og það sem Joe

gerði hvern einasta síðdag á Onyxinum,

þegar hann þuldi upp úr sér blues-kórana.

Charley Born var vanur að líkja eftir list

og látbragði fjölda píanóleikara. Rétt áður

en    Bannið    var    afnumið    fékk    Onyxinn

8 fatua

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20