Svavar Gests: FRETTIR °9 FLEIRA INNLENT. Hljómleikar voru haldnir í Austurbæjar- bíó í Keykjavík þann 10. marz s. 1. Þarna komu fram hljómsveitir þeirra Aage Lor- ange, Baldurs Kristjánssonar, Björns R. Einarssonar, Carls Billich og K.K.-sextett- inn. Einnig lék þarna 17 manna hljóm- sveit undir stjórn Sveins Olafssonar. Sig- rún Jónsdóttir söng með Lorange hljóm- sveitinni og Sigfús Halldórsson söng með Borgarhljómsveitinni lagið Tondeleyo, sem hann hefur s.jálfur samið og er það nýlega komið út í útsetningu Carls Billich. Allur ágóði af skemmtun þessari rann til barna- hjálpar sameinuðu þjóðanna. Útvarpið. í Morgunblaðinu 14. marz birt- ist viðtal við Jón Þórarinsson tónlistarfull- trúa Ríkisútvarpsins. Fyrirsögn greinar þessarar var, Klassisk músik vinsælli en jazz meðal' útvarpshlustenda". Sannanir fyrir þessu eru þær að í bréfum þeim, sem berast óskalagaþætti útvarpsins er miklu meira beðið um klassik en jazz. Þetta er afar auðskilið, hver einasti maður veit að stofnun þessi á vart eina einustu jazzplötu og því þá að biðja um það sem ekki er til. Þeir vilja nú bæta fyrir þetta og segja að ekki fáist plötur hér í bæ. Annar misskiln- ingur. Fjöldi manna hér hafa komið sér upp ágætum jazzplötusöfnum og keyptu þeir plöturnar í verzlunum í Reykjavík. Slíkt hefði útvarpið einnig getað gert og getur líkast til enn gert, ef einhver áhugi væri fyrir hendi. F.l.H. Félag íslenzkra hljóðfæraleikara hclt aðalfund sinn 15. marz s. 1. Ellefu níir meðlimir voru teknir inn í félagið. Stjórn félagsins var endui'kosin en hana skipa Bjarni Böðvarsson formaður, Fritz Weissappel gjaldkeri, Skapti Sigþórsson rit' ari, og þeir Þorvaldur Steingrímsson og Svcinn Ólafsson varamenn. Árshátíð fé- lagsins var haldinn viku síðar að Hótel Borg. Hún var hin fjölsóttasta og fór í alla staði vel fram. Baldur Kristjánsson er kominn með fimmta manninn í hljómsveit sína, hann heitir Marinó Guðmundsson og leikur á trompet og guitar. K.K.-sextettinn og Ó.G.-quartettinn höfðu skipti á píanóleikurum fyrir nokkru. Krist- ján Magnússon kom til K.K. og Steinþór Steingrímsson fór til Ó.G. Jam Session var haldin í Breiðfirðinga- búð 20 marz. Hún heppnaðist ekki eins vel og æskilegt hefði verið segja þeir, sem þar léku. Jazzblaðið gekkst nýlega fyrir því að stofnaður var klúbbur, sem hefur það mark- . mið að kynna fyrir mönnum góðan jazz af plötum. Klúbburinn kom í fyrsta sinn saman í byrjun þessa mánaðar og mun að jafnaði koma saman á tveggja vikna fresti. Hver, íA fJtizzbluiiA