Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						sem þess óskar getur gerst meðlimur og

veitir undirritaður allar nánari upplýs-

ingar.

Bíóin. Ég sagði í síðasta blaði að yfirlit

yfir músikmyndir kvikmyndahúsa bæjar-

ms yrði birt mánaðarlega. Þess verður því

miður ekki kostur, þar sem sama og ekk-

ert kemur til landsins af kvikmyndum. En

komi einhverjar músikmyndir þá verður

þeirra getið hér. Austurbeejarbíó á von á

mynd, sem gerð er um ævifelil hinna frægu

bræðra Jimmy og Tommy Dorséy. Gamla,

Nýja og Trípolibíó eiga ekki von á neinum

myndum í bráð. Tjarnarbíó mun innan

skamms sýna danska mynd, cr heitir „Mit

Liy er Musik". Mynd þessi hefur vakið

mikla athygli á meginlandinu. Mjög er

vandað til hljómlistar í myndinni. Þar leika

hljómsveit konunglegu óperunnar, Köben-

havns Koncertforenings Orkester, quartet

ErlingS Bloch og hljómsveitir Arne Hamm-

erboe, Leo Mathiesen og Svend Asmussen.

Unaðsómar hin ágæta mynd um Chopin,

verður sýnd í Tjarnai'bíó enn einu sinni,

aður en hún vcrður send á brott.

ERLENT.

Claude Thornhill hefur ráðið Gil Evans

til að útsetja fyrir hljómsveit sína og hefur

hún þegar tekið miklum stakkaskiptum.

Hún líkist nú meir og meir hljómsveitum

Þeirra Kentons, Raeburn og McKinley.

Lennie Tristano tríóinu aukast vinsældir

dag frá degi. Auk Tristano, sem leikur á

píanóið, eru í því guitarleikarinn Billy

Rauer, sem leikið hefur hjá W, Herman

og bassaleikarinn Arnold Piscken.

Sönkonan fræga Lee Wiley hélt hljóm-

leika í janúar í New York. Eddie Condon

sá um hljómleikana og þeir sem léku undir

h.já söngkonunni voru eiginmaður hennar,

hinn þekkti píanóleikari, Jess Stacy ásamt

Dixieland hljómsveit Max Kaminsky.

Duke Ellington hélt hljómleika í New

York fyrir stuttu. Junior Raglin, sem lék

hjá Duke á bassa fyrir tveimur árum, er

nú aftur kominn til hans. Eru þá tveir

bassaleikarar    í    hljómsveitinni.    Hinn    er

Oscar Pettiford. Raglin, sem er orðinn leið-

ur á Junior nafninu, vill láta kalla sig

sínu gamla nafni, en þó aðeins seinni helm-

ing þess, sem sé Vin. Hann heitir með réttu

Alvin Raglin.

Hitt og þetta. Jimmy Dorsey hefur ráðið

til sín trombónleikara, sem leikur manna

líkast Tommy Dorsey. Hann heitir Bob

Alexander. — Trommuleikarinn Kaiser

Marshall, sem lék með Fletcher Henderson

og fleiri frægum hljómsveitum, dó úr

lungnabólgu fyrir stuttu. — Fyrsta

platan, sem hin nýja Woody Herman

hljómsveit lék, heitir „I told you I love

you". — Rex Stewart hljómsveitin lék á

ellefu plötur í Frakklandi. — Söngkonan

Dinah Shoie eingnaðist dóttir í janúar.

Hún er sem kunnugt er gift kvikmynda-

leikaranum George Montgomery. Þetta er

fyrsta barn þeirra hjóna, en þau liafa verið

gift í fimm ár. — Þrír menn úr hljóm-

sveit Randy Brooks slösuðuðst er bíll sá,

sem hljómsveitin ferðast í, valt út af 25 feta

háum vegi. — Hoagy Carmichael, höfundur

„Stardust" hefur nýlega skrifað ævisögu

sína. Nú er í ráði að gera kvikmynd um

æviferil þessa mikla tónsnillings. Mun hún

bera sama nafn og bókin, „The Stardust

Road". — Hinn tvítugi be-bop trompetleik-

ari, Red Rodney, hætti hjá Krupa í haust

og fór til Claude Thornhill. Nú er hann

hættur þar og er óráðið hvert hann fer

næst. — Þeir, sem fyrstu verðlaun fengu

í Metronome kosningunum komu saman rétt

fyrir jól, og léku inn á plötu hjá Capitol.

— Enska söngkonan Beryl Davis, sem nú

er í U.S.A., söng í nokkurn tíma fyrir ára-

mót, á hinu heimsfræga útvarpsprógrami

„The Hit Parade". — Enn einu sinni hef-

ur Ray McKinley hljómsveitin gefið frá

sér snilldar plötu. Lögin, sem þeir léku,

voru, „A man's best friend is a bed" og

„Your red wagon". — „Unison riff" heitir

bezta platan, sem hin nýja hljómsveit Stan

Kenton hefur leikið á til þessa. Útsetn-

ing Pete Rugolo á laginu er sérlega góð,

og þá engu síður be-bop sóló altó-sax leik-

arans Art Pepper. — S. G.

fýaizbtaðií       lo

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20