Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						samt sem áður, það þyrlaði upp ægilegu

ryki, og enginn gat séð, að gólfið hefði

nokkurn tíma verið sópað.

Hann vann þarna sem sagt við og við.

Gandi sagði honum upp starfinu allreglu-

lega, en réði hann aftur til sín næstum

eins reglulega, af því að Smók var hér um

bil alltaf að flækjast þar nærri, og Gandi

kom alltaf auga ðNhann, þegar hann þurfti

á einhverri hjálp að halda. Hann var meira

að segja búinn að fá persónulegan áhuga

fyrir honum. Hann reyndi oftar en einu

sinni að kenna honum að sópa þannig, að

gagn mætti telja, eftir gólfinu heldur sóp-

urinn alltaf í sömu áttina þannig, að ef

maður heldur áfram eftir endilöngum saln-

um og sópar sífellt í þá átt eingöngu, ætti

maður að hafa fyrir framan sig álitlega

hrúgu af því sem maður ætlaði sér að

sópa,  þetta er ósköp einfallt,  reyndu það.

Og Smók lét ekki segja sér tvisvar að

reyna það og Gandi stóð fast við hliðina

á honum og taldi, eins og þjálfari, högg,

högg, högg, áfram, áfram, áfram, nei,

djó'fullinn hafi það, ekki afturábak. Dragðu

sópinn til baka aðeins gegnum loftið, svo

að þú sópir ekki ruslinu í öfuga átt, eins

og ég sagði þér, asninn þinn. Áfram, allt-

af áfram, já, einmitt svona. En í sömu

svipan og Gandi varð að skreppa frá til

að afgreiða vindil eða brjóstsykur, var

Smók í sama andófið af allri einlægni hins

ósveigjanlega og óspillta listamanns.

Þegar Rikki var kominn til Ganda, fékk

Smók strax veður af því, eins og með eðlis-

hvöt áttavitans, hvar jarðvegurinn var, og

nú fór hann að sópa nærri eingöngu aftan

við gangana, þar sem þess þurfti varla

með. Og þarna var það sem sá svarti

kenndi hinum hvíta rhytma, og þó ekki eftir

neinni kennisetningu, heldur með dæmum.

„Hlustaðu nú", var hann vanur að segja

áður en hann byrjaði á nýju lagi. „Og hvað

segirðu mér um þetta?" Hann birgði Rikka

upp með dæmum, og áður en varði, var

Rikki farinn að gleypa í sig erfiðustu at-

riðin.

Frh.

52. STRÆTI

Frh. af bls.9.

í algleymi við tækifæri, sem — miðað við

eðli tónlistar þeirra — eru allt að því

hlægileg, er þess vert að hugleiða. Albert

Ammons gekk út á sviðið í Carnegie Hall

eins og hann væri að ganga inn í kunn-

ing.jahóp í suðurhverfinu í Chicago og lék

eins og hann væri að leika fyrir þá. Eini

munurinn var sá, að nú notar hann Stein-

way hljómleikaflygil í staðinn fyrir gamla

píanóið sitt, sem hann hefði frekar kosið,

því að það var auðveldara. Eg geri ráð

fyrir því, að eins lengi og til er Boogie

Woogie og einhver fæst til að leika það

á píanó, muni finnast fólk svo þúsundum

skiptir, sem er þess fúst að setjast og

hlusta. En það er afleitt, að fólk hnýsist

ekki nógu mikið niður í músíkina til þess

að geta ratað að listinni, og átt þannig

hlutdeild í henni.

Eitt er víst um Fimmtugasta og annað

stræti, að þar er allsendis ómögulegt að

finna siðbætandi andrúmsloft. Ef þangað

kæmi fólk, sem áhuga hefði fyrir jazz sem

menningarfyrirbæri, eða hefir þá spurn-

ingu fram að færa, hvort „swing hefði

þjóðfélagslega þýðingu," mundu fara í

geitarhús að leita ullar, því að þar er eng-

inn móralskur mælikvarði og sífellt er

malað og músíkin heldur áfram, léleg, góð

og hvorttveggja. Músík þessi átti við and-

streymi að stríða við Strætið, lengi framan

af.

Og eitt er áreiðanlegt, að þegar bezt

lætur, gefur Fimmtugasta og annað stræti

þeim snobburum ekki undir fótinn, sem

koma til að hlusta á jazz til að seðja hé-

gómagirnd sína — og er það meira en unnt

er að segja um ýmsa staði.

MYNDIN á bls. 15, er af hinum kunna

hljómsveitarstj. og trombónleikara Tommy

Dorsey.

18      #a»LLíií

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20