Jazzblaðið - 01.09.1949, Blaðsíða 25
Hjörii breytir til
Tvær mikilvægar breytingar hafa átt sér
stað í hljómsveit Björns R. Einarssonar í
sumar. Axel Kristjánsson, sem leikið hefur
á guitar í hljómsveitinni allt.frá stofnun
hennar, er byrjaður með kontrabassa og
Ólafur Gaukur hefur komið inn í hljóm-
sveitina, sem sjötti maður, með guitar. Skip-
un hljómsveitarinnar eins og hún er (sjá
efri röð myndanna) með Axel á bassa,
Birni á trombón, Árna Elvar píanó, (neðri
röð) Gauk á guitar, Guðmundi R. trommur
og Gunnari Ormslev tenór-sax, er sú bezta
sem Björn hefur haft á að skipa og má
mjög mikils vænta af hljómsveitinni. Fjög-
ur rhythma-hljóðfæri hefur löngum verið
draumur Björns og ekki skemmir það, að
guitarinn getur leikið raddað með blásturs-
hljóðfærunum og sólóar ekki af lakari end-
anum. Björn leikur einnig á harmoniku
eins og kunnugt er og Ormslev er að æfa
sig á klarinet, svo að þeir geta náð góðum
hljómi með því að láta harmoniku, klarinet
og guitar leika raddað. Möguleikar hljóm-
sveitarinnar virðast sem sé vera ótakmark-
aðir. Björn, Gaukur og Gunnar syngja all-
ir og svo er ekki annað en að bæta Guð-
mundi við, þá hafa þeir einnig söngkvartet.
Björn hefur tjáð mér, að þeir hafi mikinn
áhuga fyrir að gera sönginn að föstum iið
í hljómsveitinni, en sem komið hefur Breið-
firðingabúð ekki leyft sér það „óhóf“ að
kaupa hljóðnema og tilheyrandi svo að sam-
komuhúsið verður því miður að teljast í
lægri „klassa“ en önnur samkomuhús hér
í bæ, og- söngurinn að bíða að sinni. Vera
má að hljómsveitin haldi hljómleika upp
úr næstu áramótum, og segir Björn að það
verði áreiðanlega ef þeir geti útvegað sér
góðar útsetningar erlendis frá.
S. G.
$az:LUi& 25