Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 34

Jazzblaðið - 01.12.1949, Blaðsíða 34
Endurminningar um fljófaháf Jess Stacy er einn af þekktari jazzpíanóleikurum. Hann lék í hljómsveitum Benny Goodman frá árinu 1935, en þar hlaut hann mesta frxgð 'sem píanóleik- ari. — Áður hafði hann leikið með nokkrum litlum hljóm8veitum. Hann hefur leikið mikið inn á plötur, 8vo 8em „Stomp“ og „Buzzin around with the hee" með Lionel Hampton og „Roll’Em" með Benny Goodman. Þá var ég unglingurinn, sem vann í hljóðfærabúð Clarks. Mér er enn í minni, að þegar allir aðrir voru famir úr búðinni, var ég vanur að setja plötu á nýja „His Master’s Voice“ gjallar- hornsgrammófóninn okkar og sópa búðina eftir nýjasta jazzhljóðfallinu. Vafalaust átti Clark bezt sópuðu hljóð- færabúð landsins í þá daga. Stórviðburður gerðist þrisvar á ári þjá Girardóhöfða, og það var þegar eimskipið Capitol lenti til að halda hljómleika. Hvílíkur spenningur! Og það var auglýst af álíka kappi og næt- urhljómleikarnir nú á dögum. Snemma um kvöldið fórum við niður eftir til að taka á móti skipinu, og þá var þessi dásamlega jazzhljómsveit komin á þilfar og farin að leika. Fólk- ið keypti sér aðgöngumiða, labbaði sig upp landganginn og lagði af stað í kvöldsiglingu. Mamma lét mig fara að læra á píanó, og ég remdist við að ná sömu tónunum úr hljóðfærinu og ég hafði heyrt hjá hljómsveitinni. Ekkert þráði ég heitar en að fá vinnu um borð í Capitol, en spilaramir þar um borð voru svo stór- kostlegir, að mér sýndust litlar líkur á, að þetta mundi takast. Það stendur mér ljóslifandi í minni, að kvöld eitt, þegar ég fór til að taka á móti Capitol, var ný hljómsveit að leika á þilfarinu með nýjan trompet- ieikara, Louis Armstrong. Þetta var hljómsveit Fate Marable, og auk Louis hafði hún upp á að bjóða tvo unga bræður, sem léku á klarinett og trommur, Johnny og Baby Dodds. Hljómsveitin lék Skeleton Jangle, Tiger Kag og hið vinsæla söngljóð dagsins, Whispering, einmitt það sama og Dizzy Gillespie leikur um þessar mundir .En mestur spenningurinn 34 jazdUií

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.