Jazzblaðið - 01.02.1950, Blaðsíða 9

Jazzblaðið - 01.02.1950, Blaðsíða 9
Hljómsveit Steinþórs Steingríms- sonar Steinþór Steingrímsson píanóleikari, sem lék í K. K.-sextettinum veturinn 1947—48, stofnaði hljómsveit í haust, sem leikur nú í samkomusal Mjólkur- stöðvarinnar. Eftir nokkrar breytingar á hljómsveitinni fyrstu vikurnar er hún nú skipuð þeim Steinþóri, píanó, Ólafi G. Þói'hallssyni, guitar, Halli Símonar, bassa, Sveini Jóhannssyni trommur, Guðmundi Vilbergssyni trompet og harmonika og Guðmundi Finnbjörns- syni fiðla og altó-saxafón. Eftir að Ólafur Gaukur kom í hljóm- sveitina í byrjun desember, byrjaði hún að æfa af kappi, því að helzt hafði stað- ið á útsetningum, en nú sá Ólafur um þær. Útsetningar þessar eru flestar litl- ar, en laglegar. Hann raddsetur þó nokk- uð fyrir guitar, fiðlu og dempaðan trom- pet og myndast þar mjög góður hljóm- ur. Þá raddsetur hann og fyrir trompet, altó og guitar, og ei' það engu síðra en hitt. í hljómsveitinni eru snjallir einleikar- ar. Guðmundur trompetleikari er flest- um kunnur fyrir góðar sólóar. Nafni hans með fiðluna og saxafónninn þekkja færri. Hann er að mínum dómi einn traustasti hljómsveitarmaður, sem nú leikur hér í bænum. Á altóinn leikur hann ekki ósvipað og Vilhjálmur Guð- jónsson. Þessi sami kröftugi tónn, ásamt svipuðum stíl, en minni tækni. Fiðlan er hans betra hljóðfæri. Hann' leikur hreint og örugglega, er nokkuð tregur til að taka sólóar, sem hann þó hefur sýnt að hann getur gert, og þær ekki af lakari endanum. Um Ólaf Gauk ætla ég ekki að ræða hér. Hann er einn vinsælasti og bezti jazzhljóðfæraleikari hér á landi og hef- ur hvað eftir annað sýnt, að vera hans í einhverri hljómsveit er nóg til þess að hún verður góð hljómsveit, og hafi hún verið góð hljómsveit fyrir, þá verður hún ennþá betri hljómsveit. Leikur Steinþórs píanóleikara hef- ur hinn sama létta og skemmtilega „Teddi Wilson blæ“ yfir sér. Hreinni tækni mundi samt hjálpa Steinþóri mik- ið og verður sennilega ekki langt að Framh. á bls. 8. JatMaíií 9

x

Jazzblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jazzblaðið
https://timarit.is/publication/722

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.