Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						oncot

OLAFLR   PETLRSSOIM

Tenór-saxófónninn hefur verið eitt

glæsilegasta einleikshljóðfæri jazzins

hin síðari ár. Góður tenór-saxófónleik-

ari nýtur ætíð mikilla vinsælda meðal

jazzunnenda, og þannig er því einmitt

farið með Ólaf Pétursson, tenórista í

hljómsveit   Kristjáns   Kristjánssonar.

Ólafur fæddist í Reykjavík þann 10.

maí 1921. Fyrsta hljóðfærið, sem Ólaf-

ur komst í kynni við var orgel, og var

hann  þá aðeins  átta  ára  gamall.

Hann lærði um skeið á orgel og þó

hann yrði aldrei orgelleikari, þá segir

hann eftir á, að þessar kennslustundir

á orgelið hafi orðið sér ómetanleg stoð

fyrir þau hljóðfæri, sem hann tók fyrir

síðar, þ. e. a. s. harmonikuna og saxó-

fóninn. Hann komst nefnilega vel niður

í nótnalestri og háði það honum ekk-

ert, þegar á reyndi síðar, sem þó hefur

viljað brenna við hjá sumum.

Um fermingu byrjaði Ölafur að leika

opinberlega á harmoniku, eða réttara

sagt harmonikur, því að hann átti enga

sjálfur, en fékk þær lánaðar hjá har-

monikufélaginu, sem þá var.

Einu til tveimur árum síðar eignað-

ist hann fyrstu harmonikuna sína og

var   það    ítölsk   Scandalli   harmonika.

Ólafur hefur ætíð síðan notað þá teg-

und af harmonikum og hefur hún

reynzt  honum  sérstaklega  vel.

Ólafur varð brátt einn allra bezti

harmonikuleikari bæjarins og var hann

mjög eftirsóttir hljóðfæraleikari. Hann

lék með hinum og þessum, er voru á

svipuðu reki og hann, og voru þeir

hvergi fastráðnir, en léku hingað og

þangað. Eitt sumarið lék Ólafur þó á

Hótel Hvanneyri á Siglufirði, og þá

aðallega á píanó og einnig á harmon-

ikuna. Með honum voru þá Karl Karls-

son og Kjartan Runólfsson, sem þá voru

að byrja hljóðfæraleik.

Árið 1942 byrjaði Ólafur að leika með

Aage Lorange í Oddfellow ásamt Paul

Bernburg og Þorvaldi Steingrímssyni.

Þá byrjaði hann einnig að leika á tenór-

saxófóninn, sem hann hefur leikið á

síðan og eins og fyrr getur, skapað

honum vinsældir meðal íslenzkra jazz-

unnenda. Áður hafði Ólafur þó leikið

lítilsháttar á klarinet, en samt aldrei

neitt að  ráði.

Með Aage var Ólafur óslitið fram

til ársins 1949, að undanskyldum ein-

um vetri, er hann lék með Þóri Jónssyni

að Hótel Borg.

4     JasMJtÍ

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20