Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						JAZZLIF  I  SVIÞJOD

Eftir BENNY AASLUND

Fréttaritara Jazzblaðsins á Norðurlöndum.

Komið þið sæl og blessuð! Ég mun

í framtíðinni segja ykkur það mark-

verðasta úr jazzlífinu hér í Svíþjóð,

og mun ég byrja þessa fyrstu grein

mína með því að skýra fyrir ykkur það,

sem skeð hefur undanfarna mánuði.

Ég byrja á gestum þeim, sem heim-

sótt hafa Svíþjóð, og ber þar fyrst að

telja hljómsveit Louis Armstrong, sem

kom í desember 1949. Með Louis voru

Barney Bigard, Jack Teagarden, Earl

Hines, Cozy Cole, Arwell Shaw og söng-

konan Velma Middleton. í desember

sama ár kom Sidney Bechet og mánuði

síðar, eða í janúar 1950, kom Cole-

man Hawkins og síðan Benny Good-

man með hljómsveit í aprílmánuði,

og var Roy Eldridge m. a. í hljómsveit-

inni.

Duke Ellington og hin fræga hljóm-

sveit hans með þeim Jimmy Hamilton,

Johnny Hodges, Russel Procope, Don

Byas, Alva McCain og Harry Carney á

saxa. Harold Baker, Al Killian, Nelson

Brown, Ernie Royal og Ray Nance á

trompeta. Lawrance Brown og Quentin

Jackson á trombóna, Wendell Marshall

bassi, Sonny Greer og Butch Ballard

trommur. Billy Strayhorn útsetjari og

söngkonurnar Kay Davis og Chubby

Kemp, — ég verð að telja þau öll upp,

þau komu í júní og síðar í sama mán-

uði kom hinn frægi blues söngvari

Josh Wite.

Kvartett Ray Ellington frá Eng-

landi, hefur nýlega verið hér og einnig

sex manna hljómsveit Hazy Osterwald

frá Sviss. Eins og þið sjáið af þessu, þá

hefur verið mikið um erlenda krafta

undanfarið.

Áður höfðum við fengið hljómsveitir

eins og Don Redman (1946), Rex Stew-

art (1947), Chubby Jackson (1948) og

Delta Rhythm Boys 1949 og eru þeir

hér aftur núna.

Og þá eitthvað um sænsku hljóm-

sveitirnar. Þær eru sannarlega engu

lakari en þær erlendu, en ég mun

kynna þær eina og eina síðar, því eins

og er, eru þær dreyfðar um landið, þar

sem þær leika á baðströndum og sumar-

skemmtistöðum.

Ég vil þó bæta því við, að sænsku

hljómsveitirnar hafa þegar vakið heims-

athygli. Plötur með þeim hafa vakið

hrifningu í Bandaríkjunum og leikur

þeirra, þegar þær hafa ferðazt uw

Evrópu. — Simon Brehm hefur verið í

Sviss, Hasse Kahn í Hollandi og Belgiu

og Thore Erling i Þýzkalandi. Staðið

hefur til, að okkar fremsti altó-saxófón-

leikari, Arne Domnerus, færi til New

York og léki í nokkrar vikur. Arne vai'

kosinn af Sambandi Sænski'a Jazz-

klúbba, „Bezti einleikari 1949".

Sérstakir útvarpsþættir eru bæði í

Bandaríkjunum og Evrópu, þar sem

sænskur   jazz   er   kynntur   á   sænskum

Ö      fýazzblaðiS

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20