Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Jazzblašiš

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Jazzblašiš

						Athugasemd frá A.  Lorange

Undirritaður átti nýlega fund með

hljómsveit Aage Lorange í sambandi

við grein, er birtist í 7.—8. tbl. Jazz-

blaðsins, og hét grein þessi „Þrjár at-

hugasemdir1'.

Hljómsveitin var á eitt sátt um, að

greinin væri ekki þess verð að svara

henni, en þar sem allrangt er farið með

Hiál, vill hún benda á, að forráðamenn

Sjálfstæðishússins hafa aldrei synjað

F. í. H. um daga til að halda dansleiki

þar, en aftur á móti hafi umrædd grein

gert sitt til að koma í veg fyrir að dag-

ar fáist þar svo einhverju nemi í fram-

tíðinni. Að nú séu dansleikir á vegum

FÍH eingöngu haldnir í ,Húsinu' er líka

vitleysa, því að strax og Aage Lorange

tók við formannsstörfum í fjáröflunar-

nefnd F. í. H., voru tveir dansleikir

haldnir á öðrum stað, en báðir með tapi,

enda hefur það sýnt sig, að dansleikir

sem F. í. H. hefur haldið í Sjálfstæðis-

húsinu, hafa aflað félaginu góðra tekna,

og það jafnvel, þótt þeir hafi verið

haldnir í miðri viku.

Einnig vill hljómsveitin benda á, að

ummæli þau, er koma fram í umræddri

grein, um trommuleikarann í Ingólfs-

café, séu hreinn atvinnurógur, og ekki

takandi mark á, enda vili hljómsveitin

halda því fram, að maður sá, sem hér

um ræðir, sé mjög fær kontrabassaleik-

ari og að það, sem hermir í greininni

séu rakalaus ósannindi.

Auk þess finnst hljómsveitinni það

mjög rangt gert af ritstjóra blaðsins,

að hafa nokkurn tíma birt grein þessa,

svo rótarleg sem hún var, og sé þetta

mjög slæmt út á við fyrir hljóðfæra-

leikara, að slíkur þvættingur skuli á

borð borinn í blaði, sem að nokkru

leyti er málgagn þeirra.

Um annað í grein þessari hirðir

hljómsveitin ekki að svara, en vill minna

höfund hennar á, að sé hann meðlimur

F. í. H., skuli hann kynna sér stefnu-

skrá félagsins, en í henni stendur: að

félagsmenn skuli stuðla að góðri sam-

vinnu sín á milli og prúðmannlegri

framkomu. Einnig væri honum gott að

athuga dálítið landslög og mannasiði.

En síðast en ekki sízt, að reyna að öðl-

ast það hugrekki, að þora að vera í

dagsljósinu næst, þegar hann finnur

þá köllun hjá sér að vera dómari í mál-

um, sem hann þykist hafa vit á.

Vera má, að það hafi verið skyssa að

birta grein þessa, hins vegar skal á það

bent, að gagnrýni á jafnan rétt á sér,

þó að hér hafi verið full gróft tekið í

árina.

Vonandi er, að nú séu allir ánægðir.

Greinarhöfundur hefur komið því á

framfæri, sem hann óskaði. Þeir, sem

hann gagnrýnir, hafa hreinsað sig af

því, er þeir telja vert að minnast á,

og undirritaður þykist hafa gert hreint

fyrir sínum dyrum með þvi að viður-

kenna, að greinin hefði ef til vill mátt

fara í ruslakörfuna.                     S. G.

$a-.ÁUd       15

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20